Um 250 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia sem haldin var á Akureyrarflugvelli í gær, 9. maí. Fram kemur í tilkynningu Isavia að æfingin hafi verið sú fyrsta af þremur á flugvöllum landsins í ár.
Þá kemur fram að um 50 sjálfboðaliðar hafi leikið slasaða farþega og áhöfn á vettvangi.
„Byggt var á flugslysaáætlun Akureyrarflugvallar og þátttakendur í æfingunni frá öllum viðbragðsaðilum á nærliggjandi svæðum,“ segir í tilkynningu félagsins.
Starfsfólk Isavia Innanlandsflugvalla ásamt flugrekstrar- og flugþjónustuaðilum hafi æft viðbúnað sinn á Akureyrarflugvelli.
„Það gerðu einnig fulltrúar Almannavarna, Landhelgisgæslunnar, Landspítalans, lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita, Rauða krossins og Sjúkrahússins á Akureyri.“
Þá hafi fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa einnig tekið þátt.

Fram kemur að líkt hafi verið eftir því að farþegaþota hefði farist.
„Björgunar- og slökkviaðgerðir voru æfðar sem og greining og aðhlynning slasaðra á vettvangi og á söfnunarsvæði slasaðra á flugvellinum.“
Áhersla hafi meðal annars verið lögð á flutning slasaðs fólks, boðunarkerfi, stjórnun á vettvangi, samhæfingu og fjarskipti.
Haft er eftir Elvu Tryggvadóttur, verkefnastjóra neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og æfingastjóra, að flugslysaæfingar á borð við þessa hjálpi til við að efla viðbúnað við flugslysum og hverjum öðrum alvarlegum slysum sem orðið geti í nærsamfélagi flugvalla.
„Isavia og Almannavarnir leggja áherslu á að þessar æfingar líki sem mest eftir þeim aðstæðum sem geta skapast í slysum af þessu tagi. Viðbragðsaðilar fá þannig að reyna sig í því sem mætti teljast nálægt þeim aðstæðum sem geta skapast þegar hættu ber að höndum. Þetta er afskaplega gagnlegt fyrir okkur, Almannavarnir og ekki hvað síst fyrir þá öflugu viðbragðsaðila og sjálfboðaliða sem tóku þátt í æfingunni,“ segir hún.
Þá er haft eftir Sigrúnu Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia Innanlandsflugvalla, að án sjálfboðaliðanna sem tóku þátt væri ekki hægt að halda svona æfingu.
„Það er mjög dýrmætt fyrir okkur að fólk í nærsamfélagi flugvallanna okkar allra sé tilbúið að gefa af sínum tíma og leika slasað fólk á vettvangi. Við erum gríðarlega þakklát fyrir það,“ segir hún.
Þá hafi verið gaman að fylgjast með hversu vel vinnan á vettvangi hafi gengið.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu vel allir viðbragðsaðilar eru samhæfðir ef atburðir sem þessir verða. Það er svo mikilvægt fyrir okkur á flugvöllum landsins að fá þessar æfingar á fjögurra ára fresti á hverjum velli fyrir sig og það sama gildir einnig fyrir alla viðbragðsaðila í hverju samfélagi fyrir sig.“
Isavia segir að næsta æfing fari fram á Ísafjarðarflugvelli 30. maí næstkomandi. Sú þriðja og síðasta verði svo haldin á Vopnafjarðarflugvelli 4. júní.