Á meðal mótvægisaðgerða sem Icelandair íhugar vegna hækkandi olíuverðs er að flýta útfösun á Boeing 757 þotum félagsins, sem ekki eru eins sparneytnar og nýrri flugvélategundir.
Þetta er meðal þess sem haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra flugfélagsins, í tilkynningu um farþegatölur félagsins í nýliðnum mánuði.
Fram kemur að félagið hafi í nýliðnum mánuði flutt 402 þúsund farþega, eða fimm prósentum fleiri en í apríl í fyrra.
„Í mánuðinum voru 28% á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 46% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands. Mest aukning var á heimamarkaðinum en 16% fleiri farþegar ferðuðust frá Íslandi og 7% fleiri ferðuðust innanlands.“
Þá kemur fram að sætanýting hafi verið 82,2 prósent, 1,2 prósentustigum hærri en á síðasta ári, á sama tíma og framboðið hafi aukist um fimm prósent.
„Stundvísi var 80,8% og hafði slæmt veður á Íslandi í upphafi mánaðar áhrif á hana.“
Einnig er tiltekið að kolefnislosun á hvern tonnkílómetra hafi dregist saman um þrjú prósent vegna aukinnar nýtingar sparneytnari flugvéla.
Haft er eftir forstjóra félagsins að ánægjulegt hafi verið að sjá áframhaldandi háa sætanýtingu og fjölgun farþega, sérstaklega á leiðinni frá Íslandi.
„Eins og undanfarna mánuði jókst framboð á milli ára, í takt við áherslur okkar á að minnka árstíðasveiflu í rekstrinum. Í sumar gerum við ráð fyrir að framboð verði lítið eitt minna en í fyrra,“ segir Bogi Nils.
Þá segir hann að í ljósi yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum og snarpra verðhækkana á eldsneyti, hafi verið brugðist við með mótvægisaðgerðum, meðal annars með áframhaldandi kostnaðaraðhaldi, hækkun fargjalda og með því að draga flugframboð saman um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi, líkt og þegar hafi verið tilkynnt.
„Að auki höfum við hafið vinnu við að draga framboðið saman um um það bil fimm prósent í haust. Frekari aðlögun á flugáætlun er til skoðunar, þar með talið möguleg ákvörðun um að flýta útfösun á Boeing 757 vélum, sem eru ekki eins sparneytnar og nýrri flugvélategundir.“