Dýpkun í Landeyjahöfn hefur gengið óvenju illa þetta vorið og höfnin verið lokuð um nokkurt skeið og lengur en áður. Vegagerðin segir að veður og sjólag undanfarnar vikur og mánuði hafi gert að verkum að erfiðlega hafi gengið að dýpka nægilega mikið til að opna höfnina.
„Aftakaveður í apríl með miklum sandburði leiddi til þess að dýpi í hafnarmynninu varð minna en tveir metrar og því ekki unnt að dýpka nema á flóði. Ölduhæð hefur undanfarnar vikur verið mun hærri en mörg ár á undan þannig að ekki hefur náðst að dýpka nægilega mikið fyrir Herjólf,“ segir í umfjöllun Vegagerðarinnar um stöðuna.
Áréttað er að í venjuleg árferði hafi gefist margir dagar í byrjun mars sem iðulega hafi dugað til að ná dýpinu ásættanlegu fyrir Herjólf. Því sé hins vegar ekki að heilsa núna.
Dýpkun hafnarinnar er háð veðurfari
„Ölduspá næstu daga er ekki góð en vonast er til að hefja megi aftur dýpkun undir eða um helgina næstu. Ef ölduhæð verður góð má þess vænta að það náist að opna höfnina á ekkert of löngum tíma.“
Fram kemur að dýpkun og sandburður í Landeyjahöfn hafi alltaf verið háður veðurfari, en undanfarin ár hafi náðst að opna Landeyjahöfn í byrjun mars eða um miðbik mánaðarins og halda siglingum meira og minna opnum í Landeyjahöfn fram á haust.
„Veturinn í vetur hefur verið með eindæmum erfiður vegna þrálátrar öldu yfir þeim mörkum sem hægt er að dýpka við.“
Vegagerðin segir að yfirleitt hafi gefist gluggar til dýpkunar í mars og þá oftast fjórir til sex dagar sem hafi dugað til þess að hægt hafi verið að opna höfnina.

Mynd Vegagerðarinnar af sjólagi við höfnina hér að ofan sýni hins vegar hvernig staðan hafi verið. Bláa línana er ölduhæðin í ár, rauða línan þvert yfir er 1,5 m ölduhæðin sem þarf fyrir dýpkun og appelsíngulu punktarnir eru sagðir mælingar fyrri ára.
Bent er á að ekki hafi verið almennilegur gluggi til dýpkunar frá því í byrjun janúar.
„Aðstæður hafa þannig verið mjög óvenjulegar miðað við undanfarin ár. Það sést vel að á fyrri árum hefur ölduhæðin verið lengi undir rauðu línunni og ölduhæð því góð til dýpkunar. Undanfarin ár hefur þetta góða tímabil varað töluvert lengi í fyrri hluta mars og því náðst að opna á þeim tíma.“
Óvissa um viðgerðartíma
Vegagerðin fjallar líka um stöðuna á Herjólfi IV, en þegar bilun kom upp í annarri af tveimur vélum skipsins hafi verið ákveðið að færa ferjuna Baldur til Vestmannaeyja til afleysinga þar sem viðbragðstími Baldurs sé mjög stuttur.
Í framhaldi af bilanagreiningu á Herjólfi IV hafi svo verið ákveðið að undirbúa að Herjólfur III gæti komið inn sem varaskip. Vel hafi gengið að undirbúa skipið og áætlað að áhöfn frá Herjólfi ohf. komi til Reykjavíkur í byrjun næstu viku til að undirbúa skipið til siglinga.
„Því miður hefur ekki tekist að skipuleggja þetta hraðar.“
Þá kemur fram að Herjólfur III risti töluvert dýpra en Herjólfur IV og geti því ekki að svo stöddu siglt inn í Landeyjahöfn.
„Bilaða vél Herjólfs IV er komin á verkstæði í Hollandi þar sem hún verður yfirfarin og lagfærð. Beðið er eftir upplýsingum frá forsvarsmönnum viðgerðanna um hversu langan tíma verkið mun taka.“