Nýr samningur meira en 30% yfir kostnaðaráætlun

Næstu skref eru að útfæra flugáætlun í samráði við hagsmunaaðila eftir þeim forsendum sem eru í samningnum og er gert ráð fyrir að sú vinna hefjist strax svo flugin geti verið komin í sölu innan skamms.

DHC- 8-200 (Dash-8) flugvél Icelandair
Í fluginu til Ísafjarðar verður notast við 37 sæta DHC- 8-200 (Dash-8) flugvélar. Mynd/Vegagerðin

Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar að samningurinn gildi til fjögurra ára og geri ráð fyrir að lágmarksfjöldi ferða verði 452 hringferðir á ári.

Flugleiðin til Ísafjarðar var boðið út í byrjun árs og hljóðaði kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar upp á 1,3 milljarða króna fyrir heildarverkið. Eitt tilboð barst, frá Icelandair, upp á rúma 3,5 milljarða króna, sem er hátt í þreföld kostnaðaráætlunin.

„Vegagerðin hafnaði tilboðinu en bauð Icelandair til samningsviðræðna sem staðið hafa síðustu vikur,“ segir í tilkynningunni.

Á grundvelli útboðs og samningsviðræðna hafi svo verið ritað undir samning í gær, miðvikudaginn 15. apríl. Heildarsamningsfjárhæð er sögð 1.690.480.000 krónur, fyrir fjögur ár, eða um 30 prósent yfir upprunalegri kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.

Munurinn er svo enn meiri ef reiknað er inn í að samningurinn gerir ráð fyrir 28,5 prósent færri ferðum en gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði.

„Samningstími er 4 ár, frá og með 1. september 2026 og til og með 31. ágúst 2030 með heimild til framlengingar um eitt ár ef forsendur þykja fyrir því.“

Fram kemur að fjöldi flugferða á viku sé breytilegur eftir árstíma.

„Þannig er miðað við minnst 7 ferðir á viku í janúar, febrúar, nóvember og desember, minnst 9 ferðir í mars, apríl, september og október en yfir sumartímann frá maí og fram í ágúst verða farnar að minnsta kosti 10 ferðir á viku.“

Notast verður við DHC- 8-200 (Dash-8) sem eru 37 sæta og eru sagðar þykja henta vel í Ísafjarðarflugið.

Næstu skref eru svo sögð að útfæra flugáætlun í samráði við hagsmunaaðila eftir þeim forsendum sem í samningnum séu og er gert ráð fyrir að sú vinna hefjist strax svo flugin geti verið komin í sölu innan skamms.

„Við erum ánægð með að hafa náð þessum samningi enda ekki sjálfgefið að hægt væri að ná samkomulagi. Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir Vestfirðinga þar sem flugið er mjög mikilvægur þáttur í samgöngum fjórðungsins,“ er haft eftir Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar. 

Þá er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að ánægja sé með að hafa náð samkomulagi við Vegagerðina og halda áfram flugi til Ísafjarðar.

„Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum, en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að þessi frábæri áfangastaður verði áfram aðgengilegur í sölu- og dreifikerfi okkar fyrir viðskiptavini okkar í Evrópu og Norður-Ameríku,“ segir hann.