Vegagerðin varar við skemmdum í vegum

Vegagerðin varar við því að holur geti myndast að nýju þar sem búið er að framkvæma neyðarviðgerð því í slæmu veðurfari og kulda geti bleyta komist í undirlag vegar og þrýstingur myndast á viðgerða skemmd í vegi.

Þjóðvegur 1. Hringvegurinn. Hellisheiði að vori.
Hellisheiði að vori. Mynd/ÓKÁ

Vegagerðin vekur athygli vegfarenda á því að víða eru skemmdir í vegum, sérstaklega í kjölfar viðvarandi rysjótts veðurfars þar sem hiti og frost skiptast á.

Á vef Vegagerðarinnar, Umferdin.is, má þessa dagana víða sjá merki um holur í vegi.

„Við slíkar aðstæður geta holur myndast hratt, einkum í rigningartíð og mikilli bleytu,“ segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Fram kemur að starfsfólk Vegagerðarinnar vinni nú að viðgerðum á holum víða um land og að brugðist sé við eins fljótt og unnt er þegar skemmdir komi í ljós eða ábendingar um þær berist Vegagerðinni.

Þá kemur fram að um sé að ræða neyðarviðgerðir á vegskemmdum til að koma í veg fyrir frekara tjón.

„Í slæmu veðurfari og kulda getur bleyta komist í undirlag vegar og þrýstingur myndast á viðgerða vegskemmd. Við slíkar aðstæður getur hola myndast að nýju.“

Þá er áréttað að Vegagerðin sinni reglubundnu eftirliti með vegum og setji jafnframt upp viðvörunarmerkingar þegar þörf krefji.

„Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og tilkynna bæði tjón og holur í vegum.“

Hægt er að senda inn ábendingar í gegnum vef Vegagerðarinnar með því að smella á „Getum við aðstoðað“ neðst í hægra horni síðunnar. Upplýsingar um ástand vega er svo að finna á vefnum Umferðin.is.