Orkuskipti í þungaflutningum sögð vera raunhæfur kostur

Vegagerðin bendir á að uppbygging nýorkuinnviða hafi hingað til verið að mestu leyti markaðsdrifin og aðallega beinst að fólksbílum.

nýorka, trukkur, þungaflutningar, rafmagn, vetni
Mynd/Netze BW á Unsplash

Rafvæðing trukka er bæði tæknilega og fjárhagslega raunhæf við íslenskar aðstæður og getur hafist nú þegar. Uppbygging hleðsluinnviða fyrir þungaflutninga er raunhæf fjárhagslega, bæði fyrir farartæki sem notast við raforku og þau sem nota vetni. Umtalsvert minni kostnaður fylgir innviðauppbyggingu fyrir vetnistrukka.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Íslenskrar nýorku: Trukkahleðslur við þjóðveginn.

„Niðurstöður verkefnisins sýna að engin tæknileg hindrun er til staðar sem kemur í veg fyrir orkuskipti í þungaflutningum á Íslandi,“ segir í samantekt á niðurstöðum skýrslunnar.

Vegagerðin fjallar um skýrsluna á vef sínum, en þar kemur fram að hún hafi verið gerð með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar og RARIK.

Innlegg í áframhaldandi vinnu

Vegagerðin bendir á að í umræðu um orkuskipti í þungaflutningum hafi oft verið bent á umfang og kostnað við innviðauppbyggingu.

Niðurstöður skýrslunnar bendi hins vegar til þess að tæknilegar og fjárhagslegar forsendur séu til staðar, þó að áfram þurfi markvissa uppbyggingu.

„Ekki er tekin afstaða til endanlegs staðarvals í skýrslunni, heldur stuðst við viðmiðunarsvæði. Þættir á borð við skipulag, landnotkun og tengingar við vegakerfið verða því til umfjöllunar í næstu skrefum,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Þá eru niðurstöðurnar sagðar nýtast sem mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnu við uppbyggingu innviða á landsvísu, sem nú sé í höndum Vegagerðarinnar.

Þá vinni Vegagerðin sömuleiðis að greiningu og þörf á skipulagi og uppbyggingu skilvirks nets nýorkuinnviða fyrir samgöngur um allt land. 

Verkefnið er sagt unnið að beiðni innviðaráðuneytisins og mikilvægt skref í orkuskiptum í samgöngum.

Haldist í hendur við samgönguáætlun

Í fyrsta áfanga verkefnisins sé lögð áhersla á að greina og meta stöðu hleðsluinnviða á Íslandi.

„Þar felst meðal annars ítarleg kortlagning á núverandi hleðslustöðvum á landsvísu og mat á því hvort núverandi net hleðslustöðva uppfylli þjónustu‑ og aðgengiskröfur, sérstaklega þegar litið er til stærri og þyngri ökutækja.“

Þá séu skoðaðar tæknilegar forsendur á borð við afkastagetu stöðva, aðgangur að orku og tengingar þeirra við stofnvegakerfið.

„Samhliða þessari greiningu er unnið að mótun framtíðarskipulags hleðsluinnviða. Unnið er að því að skilgreina hvernig hleðslustöðvar skulu hannaðar og hvaða þjónustukröfur þær þurfa að uppfylla, auk þess sem settar eru forsendur um mögulega staðsetningu þeirra á landsvísu.“

Sagt er mikilvægt að allt skipulag samræmist samgönguáætlun og helstu áherslum í þróun vegakerfis, hafna og flugvalla.

„Jafnframt eru gerðar áætlanir um fjárhagslegar og framkvæmdalegar forsendur verkefnisins, þar á meðal mat á kostnaði, mögulegum rekstrarformum og framlagðar verk‑ og tímaáætlanir til að tryggja hagkvæma og markvissa uppbyggingu.“

Hugsanlega þarf opinbera þátttöku

Vegagerðin bendir á að uppbygging nýorkuinnviða hafi hingað til verið að mestu leyti markaðsdrifin og aðallega beinst að fólksbílum.

„Stuðningur úr Loftslags‑ og orkusjóði hefur reynst mikilvægur í þessari þróun, en áfram þarf að tryggja fjárfestingu og stuðning sérstaklega við innviði fyrir þungaflutningatæki.“

Þannig þurfi að meta hvort opinber þátttaka sé nauðsynleg á ákveðnum svæðum til að tryggja jafnt aðgengi að nýorkuinnviðum.