Sjá tækifæri fyrir leiguflug með kaupum á Play Europe

Að mati forstjóra Icelandair opnar það á ný og spennandi viðskiptatækifæri fyrir flugfélagið að hafa aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu og Íslandi.

Mynd/samsett

Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar.

Í tilkynningu Icelandair er farið yfir að félagið hafi verið stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og sé nú í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða.

„Með kaupum á hlut í félaginu skapast aukin tækifæri fyrir leiguflug, meðal annars vegna víðtækari loftferða- og tvísköttunarsamninga sem maltneska félagið hefur aðgang að,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Jafnframt verði til tækifæri til aðgreiningar á flugflota Icelandair þar sem flugvélar sem séu hugsaðar til lengri tíma í farþegaleiðakerfi Icelandair væru reknar á Íslandi, en aðrar vélar á Möltu.

„Með slíkri aðgreiningu verður rekstur Icelandair einfaldari og skilvirkari.“

Viljayfirlýsingin er sögð grundvöllur frekari viðræðna.

„Möguleg viðskipti, komi til þeirra, yrðu háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlegri samningsgerð, samkomulagi veðtryggðra kröfuhafa þrotabús Fly Play hf. við skiptastjóra þrotabúsins og viðeigandi samþykktum, þar á meðal frá stjórnvöldum eftir því sem við á.“

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að flestöll flugfélög á mörkuðum Icelandair, sérstaklega í Evrópu, reki fleiri en eitt flugrekstrarleyfi sem gefi þeim aukinn sveigjanleika í sínum rekstri.

„Nái viðskiptin fram að ganga myndi það á sama hátt auka sveigjanleika og samkeppnishæfni Icelandair. Að hafa aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu og Íslandi getur opnað ný og spennandi viðskiptatækifæri og á sama tíma stuðlað að einföldun á starfsemi okkar hér á Íslandi, sem skapar talsverð hagræðingartækifæri,“ segir hann.