Icelandair flutti 289 þúsund farþega í febrúar 2026, 15 prósentum fleiri en í febrúar í fyrra.
Fram kemur í tilkynningu flugfélagsins að í mánuðinum hafi 42 prósent farþeganna verið á leið til Íslands, 21% frá Íslandi, 30% verið tengifarþegar og sjö prósent ferðast innanlands.
„Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 20% og farþegum frá Íslandi um 19%, í takt við áherslur sem félagið hefur lagt á þessa markaði. Sætanýting var 79,9% og stundvísi var 88,9%, 8,4 prósentustigum hærri en í sama mánuði á síðasta ári.“
Þá segir að seldum blokktímum í leiguflugi hafi fjölgað um 26 prósent og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum hafi aukist um tvö prósent á milli ára.
„Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4% meðal annars vegna áframhaldandi endurnýjunar flugflota og áherslu á rekstrarumbætur sem miða að bættri eldsneytisnýtingu.“
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, mjög ánægjulegt hafi verið að sjá áframhaldandi árangur af áherslum flugfélagsins á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi.
Þróunin styðji við markmið Icelandair um að draga úr árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta sveigjanleika leiðakerfisins til þess að auka framboð á þeim mörkuðum sem skili mestri framlegð hverju sinni.
„Viðskiptavinir hafa tekið vel í vöxt okkar yfir vetrartímann sem endurspeglast í aukinni sætanýtingu þrátt fyrir 15% aukningu framboðs á milli ára. Breytt samsetning farþega milli markaða átti stærstan þátt í 10% hækkun í tekjum á farþegakílómetra á milli ára,“ segir Bogi Nils.
Félagið hafi aldrei flutt jafn marga farþega í febrúar, hafi jafnframt náð metárangri í sætanýtingu og stundvísi, þrátt fyrir óvænta röskun á flugi vegna veðurs undir lok mánaðar.
„Þennan árangur má meðal annars sjá í mikilli ánægju viðskiptavina og er hann skýr vitnisburður um seiglu, fagmennsku og eljusemi starfsfólks Icelandair,“ segir hann.