Samdráttur strandflutninga baggi á þjóðvegum landsins

Aðgerðir stjórnvalda á undanförnum árum, einkum með hækkun ýmissa opinberra gjalda á strandsiglingar, hafa ekki unnið með strandflutningum, að mati starfshóps innviðaráðherra.

Skýrsla starfshópsins.
Skýrsla starfshópsins. Mynd/samsett

Auknir strandflutningar munu styðja við aðgerðir í loftslagsmálum, draga úr kostnaði ríkisins við þjóðvegakerfið vegna þungaflutninga og auka öryggi á þjóðvegum landsins. Þetta er álit starfshóps innviðaráðherra um strandsiglingar sem fyrir helgi skilaði skýrslu sinni til ráðherra.

Yfirskrift skýrslunnar er „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ en í henni leggur starfshópurinn fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem væru til þess fallnar að styrkja forsendur fyrir strandsiglingar og vöruflutninga á sjó.

„Tillögur starfshópsins verða nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu,“ segir í færslu innviðaráðuneytisins.

Í útdrætti starfshópsins í skýrslunni sjálfri er bent á að frá síðustu aldamótum hafi vöruflutningar hér á landi þróast þannig að landflutningar hafi að verulegu leyti tekið við af strandflutningum.

Frá árinu 2013 hafi þó töluverður hluti vöruflutninga farið með strandflutningum, þar til síðasta haust að verulega dró úr framboði strandflutninga þegar Eimskip hætti þeirri þjónustu.

„Þessi þróun hefur leitt af sér stóraukið álag á þjóðvegi landsins sem margir hverjir voru ekki hannaðir og byggðir fyrir slíkt álag.“

Vísað er til þess að innviðaskuld í þjóðvegakerfinu, sem Vegagerðin meti á um 180 milljarða króna, sé komin til að verulegu leyti vegna viðhaldsþarfar og aukinna þungaflutninga á þjóðvegum landsins.

„Aðgerðir stjórnvalda á undanförnum árum, einkum með hækkun ýmissa opinberra gjalda á strandsiglingar, hafa ekki unnið með strandflutningum. Þær hafa þannig einnig dregið úr möguleikum til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda í vöruflutningum fyrir tilstilli strandflutninga.“

Sem dæmi er nefnt að kolefnisálögur á strandflutninga hafi aukist um rúm 400 prósent á síðastliðnum þremur árum.

Hópurinn tiltekur þann ávinning sem auknir strandflutningar hefðu í för með sér, en áréttar um leið að verði ekkert að gert blasi við að landflutningar haldi áfram að aukast og álag á vegakerfið og kostnaður við það muni haldast í hendur og vaxa umtalsvert á næstu árum.

Starfshópur innviðaráðherra afhendir skýrslu sína. Frá vinstri eru Fannar Gíslason, Benedikt S. Benediktsson, Magnús Jóhannesson, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Sóley Ragnarsdóttir, Jón Gunnar Jónsson og Katrín Pálsdóttir. Mynd/Innviðaráðuneytið

Helstu tillögur starfshópsins

Aðgerðirnar sem starfshópur innviðaráðherra leggur til svo efla megi strandsiglingar með vöru eru eftirfarandi:

  1. Öll kolefnisgjöld af reglubundnum strandsiglingum verði lögð af þar til komnar eru raunhæfar lausnir til orkuskipta í siglingum stærri skipa. Nýtt fyrirkomulag endurgreiðslu hluta kolefnisgjalda dugir að mati starfshópsins ekki til að efla strandsiglingar. 
  2. Stjórnvöld beiti sér fyrir því að skip í reglubundnum strandsiglingum hér við land verði utan ETS kerfisins með sama hætti og innanlandsflug er utan þess.
  3. Vitagjöld verði felld niður af skipum sem bjóða upp á reglubundnar strandsiglingar. 
  4. Hafnayfirvöld leysi skip sem eru í reglubundnum strandsiglingum frá hafnsöguskyldu og gjaldakafli hafnalaga verði endurskoðaður með það að markmiði að gera höfnunum mögulegt að styðja betur við þróun strandflutninga. 
  5. Vegagerðin hraði mati á kostnaði og ábata vegna landflutninga við þjóðvegakerfið og því verði lokið eigi síðar en árið 2027. Þær upplýsingar verði nýttar við stefnumótun stjórnvalda varðandi vegakerfið, losun gróðurhúsalofttegunda og umferðaröryggi. 
  6. Árvekni stjórnvalda í málefnum strandflutninga verði aukin með formlegri samvinnu Vegagerðarinnar og Hafnasambands Íslands undir forystu innviðaráðuneytisins í samráði við hagaðila, þar sem fylgst er með þróun vöruflutninga og gerðar tillögur um viðbrögð stjórnvalda eftir því sem ástæða er til og tök eru á. Slíkt samstarf mun skapa vettvang til að meta rekstrarforsendur, innviði, regluverk og markaðsforsendur strandsiglinga.
  7. Tekið verði til skoðunar að færa inn sem aðgerð í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum að efla strandflutninga. 

Í færslu ráðuneytisins kemur fram að innviðaráðherra hafi skipað starfshópinn í ágúst 2025 til að koma með tillögur að aðgerðum til að efla strandflutninga og auka vöruflutninga á sjó í stað flutninga á þjóðvegum.

„Starfshópnum var m.a. ætlað að vinna áfram með skýrslu sem Vegagerðin gerði fyrir innviðaráðuneytið og skilaði í desember 2024.“

Í starfshópnum sátu: 

  • Magnús Jóhannesson, formaður, án tilnefningar,
  • Sóley Ragnarsdóttir, án tilnefningar, 
  • Katrín Pálsdóttir, án tilnefningar,
  • Benedikt S. Benediktsson, tilnefndur af Samtökum verslunar og þjónustu,
  • Fannar Gíslason, tilnefndur af Vegagerðinni,
  • Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu,
  • Linda Björk Gunnlaugsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.