Icelandair hættir að fljúga til Istanbúl

Icelandair, Istanbul
Í fyrsta flugi Icelandair til Istanbul skipuðu áhöfn Hekla Aðalsteinsdóttir, Tuna Dís Olgudóttir, Birta Björg Alexandersdóttir og Hólmfríður Björk Óskarsdóttir, flugfreyjur, Árni Björnsson, flugstjóri og Aron Kári Kristófersson flugmaður. Mynd/Icelandair

Icelandair hefur ákveðið að hætta flugi til Istanbúl frá og með 1. febrúar næstkomandi.

Í tilkynningu flugfélagsins er vísað til þess að samkvæmt kjarasamningi Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafi uppbygging flugleiðarinnar krafist undanþágu frá kjarasamningi, en stéttarfélagið hafi dregið undanþáguna til baka frá og með 1. febrúar 2026.

„Farþegar sem verða fyrir áhrifum geta valið um endurbókun með tengiflugi eða endurgreiðslu farmiða,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að félagið hafi séð mikil tækifæri í því að byggja Istanbúl upp sem nýjan áfangastað í leiðakerfinu til að tengja Asíu og Mið-Austurlönd við Ísland og Norður-Ameríku.

Asíumarkaður hafi verið að vaxa hvað hraðast þegar félagið hafi horft á eftirspurn eftir ferðum til Íslands.

„Því miður mun afturköllun undanþágunnar leiða til kostnaðarhækkana og óvissu sem gera það að verkum að þessi flugleið og frekari fjárfesting í uppbyggingu hennar er að óbreyttu ekki lengur raunhæf fyrir félagið,“ segir hann.

Bogi áréttar um leið að flugfélagið haldi áfram að skoða framtíðartækifæri í Asíu og Mið-Austurlöndum.

„Að því gefnu að félagið hafi sveigjanleikann til að vaxa á þeim mörkuðum.“