Tafir á opnun nýs vegar um Hornafjarðarfljót stafa af því að ekki náðist að leggja seinna lag klæðningar á allan vegkaflann meðan veður leyfði. Fram kemur í nýrri færslu á vef Vegagerðarinnar að vonir hafi staðið til að opna fyrr fyrir umferð.
Fram kemur að eftir eigi að leggja seinna lag klæðingar á frekan stuttan kafla, eða á um tvo kílómetra.
„Þá á eftir að mála yfirborðmerkingar og annað sem þarf til þess að hægt sé að hleypa umferð á veginn,“ segir þar.
Eins hafi hafi verið ákveðið að í stað svokallaðra T-gatnamóta austast á kaflanum hafi verið ákveðið að byggja þar hringtorg.
„Og þannig lengdist í verkinu.“
Framkvæmdir eru engu að síður sagðar hafa gengið mjög vel. Fyrir jól hafi til dæmis verið lokið við uppsetningu steinvegriðs á fyllingunum við brúna yfir Hornafjarðarfljót.
„Til að ljúka klæðingarvinnu og koma á yfirborðsmerkingum þarf að bíða þess að veður heimili það, bæði þarf aukinn lofthita og frost þarf að vera farið úr jörðu. Þá á eftir að ljúka við hringtorgið.“
Fram kemur að nýi vegurinn komi til með að stytta Hringveginn um tólf kílómetra og einbreiðum brúm á Hringveginum mun fækka um þrjár og verða þá 26 talsins.
„Framkvæmdin felur í sér lagningu 19 km af þjóðvegi og 9 km af hliðarvegum. Fjórar nýjar tvíbreiðar brýr hafa verið byggðar.“
Þá segir að gamli vegurinn verði áfram í notkun fyrir innansveitarumferð.