Icelandair flutti í fyrsta sinn yfir fimm milljónir farþega

Hærra hlutfall eyðslugrennri flugvéla í flota Icelandair og góð sætanýting varð til þess að kolefnislosun félagsins á hvern tonnkílómetra dróst saman um sex prósent í nýliðnum desembermánuði.

Farþegaþota Icelandair á flugi.
Mynd/Icelandair

Icelandair flutti 344 þúsund farþega í desember 2025, tíu prósentum fleiri en í desember 2024. Þar með sló flugfélagið nýtt farþegamet fyrir árið í heild með endanlegri farþegatölu upp á 5,1 milljón.

Það eru átta prósentum fleiri farþegar en árið 2024, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins.

Fram kemur að af farþegum sem Icelandair flutti í desember hafi 27 prósent verið á leið til Íslands, 20 prósent frá Íslandi, 48 prósent ferðast um Ísland á leið sinni annað og sex prósent hafi verið farþegar innan Íslands.

„Stundvísi var 80,1 prósent sem er framúrskarandi niðurstaða fyrir desember en í sama mánuði árið 2024 var hún 59,7 prósent,“ segir í tilkynningunni. 

Stundvísi er einnig sögð hafa aukist fyrir árið í heild og verið 83,9 prósent samanborið við 82,7 prósent árið 2024.

„Metsætanýting náðist í desember eða 84,1 prósent. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 6 prósent, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum og góðrar sætanýtingar.“

Þá segir að seldum blokktímum í leiguflugi hafi fjölgað um ellefu prósent, samanborið við desember á síðasta ári og fraktflutningar aukist um þrjú prósent á sama tíma.

Í tilkynningunni er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að desember hafi verið stærsti mánuður í sögu félagsins og sömuleiðis árið í heild þegar fjöldi farþega hafi í fyrsta sinn farið yfir fimm milljónir.

„Við lögðum áherslu á að auka framboð utan háannatíma til að hámarka nýtingu innviða og draga úr árstíðarsveiflu,“ segir hann.

Þá setji framúrskarandi stundvísi á árinu félagið í hóp fremstu flugfélaga Evrópu.

„Þessi niðurstaða er árangur sameiginlegs átaks alls starfsfólks Icelandair.“