Faxaflóahafnir taka þátt í samstarfi um rafvæðingu hafna

Að sögn Faxaflóahafna er aðildin mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð stofnunarinnar við að þróa og stafrækja snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

Fridtjof Nansen við Austurhöfn í Reykjavík.
Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen við hafnarbakkann í gömlu höfninni í Reykjavík. Mynd/ÓKÁ

Faxaflóahafnir hafa gengið til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku (European Onshore Power Supply Association eða EOPSA).

Fram kemur á vef Faxaflóahafna að EOPSA séu evrópsk samtök sem vinni að því að efla notkun landtengingar rafmagns í höfnum álfunnar.

„Aðildin er mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð Faxaflóahafna við að þróa og stafrækja snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar,“ segir þar.

Með aðildinni eru Faxaflóahafnir sagðar styrkja þátttöku sína í alþjóðlegu samstarfi um rafvæðingu hafna, miðlun þekkingar og mótun sameiginlegra staðla.

„Aðildin veitir aðgang að víðtæku tengslaneti hafna, sérfræðinga, nýsköpunar-  og orkufyrirtækja, stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka sem vinna að innleiðingu landtenginga um alla Evrópu.“

Þá er aðildin að EOPSA sögð falla vel að framtíðarsýn og hlutveki Faxaflóahafna um að bæta lífsgæði á Íslandi með því að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir sem tengi stærsta markaðs- og atvinnusvæði landsins við umheiminn og miðin.