Greiðslukerfi Vegagerðar og Strætó verða aðskilin

Um áramót taka líka gildi breytingar á leiðakerfi landsbyggðarvagna

Strætisvagn í umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/ÓKÁ

Eftir áramótin verður ekki hægt að nýta fargjöld milli Klapp greiðslukerfis Strætó á höfuðborgarsvæðinu og greiðslukerfis Vegagerðarinnar, sem rekur landsbyggðarstrætó. Frá og með 1. janúar nýtist fargjald sem greitt er í öðru kerfinu ekki upp í greiðslu í hinu.

Á vef Vegagerðarinnar er áréttað að Strætó bs. sjái um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og notist við Klapp greiðslukerfið, meðan landsbyggðarstrætó sé á vegum Vegagerðarinnar, sem reki eigið greiðslukerfi. 

„Strætó sér um ákveðna upplýsingagjöf og þjónustu fyrir farþega. Farþegar greiða fargjald um borð í vögnunum með reiðufé, greiðslukorti eða áskriftarkorti landsbyggðarstrætó,“ segir þar.

Upplýsingar um fargjöld í landsbyggðarstrætó er að á vef Strætós.

 Um áramót taka líka gildi breytingar á leiðakerfi landsbyggðarvagna.

„Verkefnið er hluti af heildrænni endurskoðun á leiðakerfinu, en það hefur verið að mestu óbreytt frá árinu 2012,“ segir í færslu Vegagerðarinnar.

Fram kemur að á sama tíma taki gildi fjórir nýir útboðssamningar um akstur á Suðurnesjum, Suðurlandi, Vestur- og Norðurlandi og Norður- og Norðausturlandi.

Markmiðið með endurskoðuninni er sagt að gera landsbyggðarvagna aðlaðandi valkost fyrir núverandi og framtíðarnotendur.

Breytingarnar felist í:

  • samþættingu leiðakerfisins við önnur innanbæjarkerfi
  • tengingum við áætlunarflugvelli og ferjuhafnir
  • undirbúningi leiðakerfisins fyrir orkuskipti
  • einföldun á farmiðakaupum notenda
Hér má sjá leiðakerfi landsbyggðarvagna sem tekur gildi um áramót. Mynd/Vegagerðin

Leiðanet landsbyggðavagna er sagt spanna alla landshluta og skiptist rekstur kerfisins niður í fimm útboðssvæði: Austurland, Norður- og Norðausturland, Vestur- og Norðurland, Suðurnes og Suðurland.

„Leiðakerfi landsbyggðarvagna er mjög stórt og umfangsmikið. Í kerfinu eru í dag alls 30 akstursleiðir sem sinnt er af 35 vögnum, en frá og með áramótum mun akstursleiðunum fjölga um tvær og fjöldi vagna fer alls í 38.“

Notendahópur landsbyggðarvagnanna er jafnframt sagður fjölbreyttur en megi í stuttu máli flokka í tvennt. Annars vegar sé það fólk sem notar kerfið daglega til að sækja vinnu og skóla og hins vegar fólk sem nýtir kerfið sjaldnar og þá fyrir langferðir.

Stærsta breytingin á leiðakerfinu er sögð aðgreining akstursleiða sem sinni annars vegar vinnu- og skólasókn, og hins vegar langferðum.

„Tímaáætlun akstursleiða sem sinna vinnu- og skólasóknarsvæðum verður áreiðanlegri, en seinkanir sem verða í dag á lengri akstursleiðum vegna færðar eða annara atvika, hafa veruleg áhrif á ferðir þeirra sem nota sömu vagna til að ferðast heim eftir vinnu og skóla.“

Þá komi aksturstíðni vagna til með að verða þéttari á morgnana og síðdegis, aðallega á leiðum sem aki inn á höfuðborgarsvæðið.

„Tími milli ferða á álagstímum verður að jafnaði 1 klukkustund í stað 1,5 til 2 klst. eins og það er í dag.“

Nánari upplýsingar um leiðakerfið er svo að finna á vef Strætós bs.