Reitir fasteignafélag fagna áformum um lagningu Sundabrautar í umsögn um verkefnið í Skipulagsgáttinni. Fyrirtæki segir verkefnið mikilvæga samgöngubót fyrir tengingu höfuðborgarsvæðisins við nærliggjandi sveitarfélög og vesturlandið allt.
Frestur til að senda inn umsagnir við umhverfismatsskýrslu Sundabrautar rennur út 30. þessa mánaðar, en þegar er 39 umsagnir að finna um verkefnið í Skipulagsgáttinni.
Íbúar hafa áhyggjur
Flestar, eða ríflega tveir þriðju, eru frá einstaklingum, að hluta íbúum nærri framkvæmdsvæðinu, sem ýmist óttast áhrif framkvæmdarinnar á náttúrufar við fyrirhugaða legu Sundabrautar, eða áhrif á hljóðvist og mögulega umferðaraukningu þar sem brautin tengist hverfum borgarinnar.
Í umsögn Reita segir að ljóst sé að mikil breyting verði á samgöngum um núverandi hafnarsvæði í Vogunum sem og verslunarmiðstöðina Holtagarða með lagningu Sundabrautar. Hvatt er til þess að hugað verði sérstaklega að tengingum vegna verslunar og þjónustu við syðri enda Sundabrautar.
Jákvæð áhrif á byggðaþróun
Reitir segjast leggja áherslu á betra flæði umferðar um svæðið þannig að viðhaldið verði þar uppbyggingu á verslun og þjónustu til framtíðar. Eins þurfi að huga að akstursleið flutningabíla til og frá nýja hafnarsvæðinu, þar sem flutningar verði daglega um Sundabraut.
„Við hjá Reitum teljum að lagning Sundabrautar hafi jákvæð áhrif á byggðarþróun á höfuðborgarsvæðinu þar sem tenging opnast við áður óbyggð landsvæði. Það er mikilvægur þáttur fyrir áframhaldandi þróun og stækkun höfuðborgarsvæðisins á næstu áratugum,“ segir í umsögn fyrirtækisins.
Þá hafa í Skipulagsgáttinni einnig verið birtar umsagnir Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar þar sem áformum um lagningu Sundabrautar er fagnað.
Sveitarfélög sjá mikinn ávinning
Borgarbyggð telur framkvæmdina „gríðarlega samgöngubót“ sem styrki til muna tengingu milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins. Þá komi Sundabraut til með að draga úr þeim umferðarþunga sem einkennt hafi margar meginleiðir innan höfuðborgarsvæðisins.
„Sundabraut gerir nágrannasveitarfélög höfuðborgarsvæðisins að enn raunhæfari kosti til búsetu,“ segir í umsögn Borgarbyggðar.
Sambærilegur hljómur er í umsögn Hvalfjarðarsveitar og sagt liggja fyrir að ávinningur væntanlegra notenda Sundabrautar verði umtalsverður og arðsemi verkefnisins mikil.
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hvetur til þess að valinn verði hagkvæmasti kosturinn þannig að framkvæmdir geti hafist sem fyrst,“ segir þar.
Frekari upplýsingar og gögn um fyrirhugaða Sundabraut, upptökur af kynningarfundum vegna verkefnisins og svör við ýmsum spurningum tengdum verkefninu, er að finna á vef Vegagerðarinnar.