Icelandair flutti alls 464 þúsund farþega í október sem er aukning um 14 prósent milli ára. Í tilkynningu félagsins kemur fram að vöxturinn hafi verið mikill á markaðnum til Íslands, þar sem farþegafjöldi hafi aukist um 20 prósent milli ára og á markaðnum frá Íslandi þar sem aukningin hafi verið 31 prósent.
„Í mánuðinum voru 37% farþega á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 38% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands. Sætanýting nam 85,0% og stundvísi var 81,4%, sem er lækkun um 3,1 prósentustig samanborið við síðasta ár, vegna mikillar snjókomu í lok mánaðarins sem olli umtalsverðum röskunum á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli yfir tveggja daga tímabil.“
Fram kemur að það sem af er ári hafi 4,4 milljónir farþega flogið með Icelandair, sem séu átta prósent fleiri en á sama tímabili í fyrra.
„Leiguflugsstarfsemin hélt áfram að vaxa með 25% aukningu í seldum blokktímum á milli ára. Fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 22% en samdrátturinn í fluttum tonnum nam 11% og skýrist munurinn þar á milli af breytingu á markaðssamsetningu.“
Flutt magn hafi dregist saman á lengri leiðum til Norður-Ameríku, á meðan innflutningur hafi aukist um 12 prósent á styttri leiðum frá Evrópu. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra er sögð hafa dregist saman um fjögur prósent, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum.
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að farþegum hafi fjölgað umtalsvert í október sem sé í takt við áherslu félagsins á að vaxa utan háannar og þannig jafna árstíðasveiflu í rekstrinum.
„Það er einnig mjög ánægjulegt að sjá að áherslur okkar á markaðina til og frá landinu halda áfram að skila árangri. Stundvísi var góð framan af október en mikil snjókoma í lok mánaðarins gerði það að verkum að stundvísi minnkaði milli ára. Ég vil þakka starfsfólki félagsins sem lögðust öll á eitt við erfiðar og óvenjulegar aðstæður á þessum árstíma. Því miður neyddumst við til þess að aflýsa fjölda flugferða vegna þessara aðstæðna.“
Þá nefnir Bogi að félagið hafi kynnt Miami í Flórída sem nýjan áfangastað í mánuðinum.
„Og er það í takt við áherslur okkar á að auka flug yfir vetrartímann til áfangastaða sem eru vinsælir utan okkar háannatíma. Miami er spennandi áfangastaður fyrir Íslendinga og aðra Evrópubúa en jafnframt sjáum við mikil tækifæri í að kynna flug til Íslands og áfram til Evrópu fyrir fólki í suðurhluta Flórída.“