Vara við sex tíma lokun á brúnni við Jökulsárlón

Jökulsárlón er vinsæll ferðamannastaður og segir Vegagerðin að gangandi vegfarendum á brúnni yfir Jökulsá hafi fjölgað mikið undanfarin misseri, ekki síst eftir að farið hafi verið að innheimta bílastæðagjöld.

Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Mynd/Google Earth

Vegagerðin varar við því að brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi, við Jökulsárlón, verður lokað vegna viðgerðar annað kvöld, þriðjudagskvöldið 4. nóvember. Gert er ráð fyrir að lokunin vari í sex klukkustundir, frá klukkan sjö að kvöldi til eitt um nóttina á meðan gert verður við undirstöður brúarinnar.

Vegagerðin biður viðbragðsaðila í neyð þurfi að komnst yfir brúna á þessum tíma um að hafa samband eins fljótt og auðið er.

„Viðbragðsaðilum á tiltölulega léttum ökutækjum verður hleypt yfir brúna með 15-20 mínútna fyrirvara sem þarf til undirbúnings. Mikilvægt er að láta vinnuflokk vita sem fyrst svo hægt sé að hefja undirbúning á því að hleypa viðbragðsaðilum í gegn,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Lyfta brúnni og skipta út legum

Fram kemur að vinnuflokkur Vegagerðarinnar hafi undanfarna daga unnið við að skipta út timburbríkum sem brotnað hafi við ákeyrslu í sumar, ásamt því að undirbúa leguskipti. Í lok júní hafi vinnuflokkurinn unnið við að skipta út timburgólfi við báða brúarenda.

„Á þriðjudagskvöld stendur til að lyfta brúnni upp og skipta út legum beggja megin að vestanverðu. Legurnar eru orðnar gamlar og slitnar og brúin því á mikilli hreyfingu þegar ekið er yfir hana. Þá verður 4 metra löngum stálbita skipt út fyrir nýjan.“

Á næstunni segir Vegagerðin einnig standa til að fara í útskipti á legunum og stálbita að austanverðu ásamt því að halda áfram með viðgerð á bríkum.

Vegna þungatakmarkana á brúnni hefur Vegagerðin farið fram á að vinnutæki sem flutt hafa verið á milli landshluta á bílum með tengivagna, væru tekin af tengivögnunum og keyrð yfir brúna.

„Þetta fyrirkomulag hefur því miður í för með sér að skemmdir hafa orðið á timburbríkum beggja megin brúarinnar.“

Brúin að verða sextug

Þá bendir Vegagerðin á að brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi sé hengibrú, sem hafi verið tekin í notkun árið 1967 og því orðin 58 ára gömul.

„Brúin er 108 metra löng og á henni eru þungatakmarkanir sem og breiddartakmarkanir.“

Jafnframt er bent á að Jökulsárlón sé vinsæll ferðamannastaður og að gangandi vegfarendum á brúnni hafi fjölgað mikið undanfarin misseri, ekki síst eftir að farið hafi verið að innheimta bílastæðagjöld.

„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna þolinmæði á meðan viðgerðirnar fara fram.“