Fyrsta flug Icelandair til Miami

Flugtími frá Keflavík til Miami í Flórída í Bandaríkjunum er um átta klukkustundir á nýjum Airbus A321LR farþegaþotum Icelandair.

Icelandair Miami
Það var líf og fjör þegar Icelandair fagnaði sínu fyrsta flugi til Miami í Bandaríkjunum. Mynd/Icelandair

Icelandair hóf um helgina áætlunarflugi til og frá Miami í Flórída. Nýju flugleiðinni var fagnað bæði á Keflavíkurflugvelli og í Miami.

Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að flogið verði til Miami þrisvar í viku, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, til 2. maí 2026.

„Flugtími er um átta klukkustundir á nýjum Airbus A321LR vélum félagsins.“ 

Bogi Nils Bogason, Svanhildur Hólm Valsdóttir og fleiri.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, fylgist með Svanhildi Hólm Valsdóttur, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, skera sneið af hátíðartertu í tilefni af nýja áfangastaðnum. Mynd/Icelandair

Icelandair segir að Miami sé nítjándi áfangastaður flugfélagsins í Norður-Ameríku og annar áfangastaður félagsins í Flórída. Félagið hefur um árabil boðið upp á flug til Orlando.

„Miami borg er þekkt fyrir fallegar strendur, fjölbreytta menningu og líflegt næturlíf.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, heldur ræðu. Mynd/Icelandair

Þá er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að mikil ánægja sé hjá félaginum með að hefja flug til Miami og bjóða farþegum upp á nýjan og spennandi áfangastað í Flórída.

„Nýju Airbus vélarnar opna tækifæri til þess að bæta við spennandi áfangastöðum og Miami er frábært dæmi um það,“ segir hann.

Þá opni flugið einnig fjölbreyttar tengingar fyrir farþega frá Miami til 38 áfangastaða Icelandair í Evrópu, um Ísland, og öfugt.