Á kynningarfundi Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar um Sundabraut höfðu íbúar á Kjalarnesi á orði að þeir hefðu beðið lengi eftir Sundabraut, sem hefði verið ein af forsendum sameiningar við Reykjavík sem samþykkt var árið 1997 og gekk í gegn í ársbyrjun 1998.
Einnig var spurt út í fyrirhugaða gjaldtöku um brautina, en ekki hefur enn verið ákveðið hvernig hún verður útfærð. Sömuleiðis var spurt hvort hægt yrði að hjóla úr miðbænum upp á Kjalarnes og því svarað að gert væri ráð fyrir blönduðum göngu- og hjólastíg meðfram allri brautinni.
Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar.
Á fundinum var farið yfir þá kosti við leiðarval Sundabrautar sem til umfjöllunar eru í umhverfismatskýrslunni; leiðir há- eða lágbrúar yfir Kleppsvík, eða göng undir, sem og leiðarval áfram og yfir á Kjalarnes.
Þá var einnig farið yfir hvernig framkvæmdin myndi bæta flæði umferðar á höfuðborgarsvæðinu og samspil við fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur.
Á fundinum var einnig gerð grein fyrir niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu á afstöðu fólks til lagningar Sundabrautar sem fram fór 3. til 15. október sl. Í henni kom fram nokkuð afgerandi stuðningur við framkvæmdina meðal allra hópa.
76 prósent landsmanna eru hlynntir lagningu Sundabrautar, þar af 47 prósent mjög hlynnt og 28,5 prósent frekar hlynnt framkvæmdinni. Andstaða mældist mest í Grafarvogi þar sem 14 prósent eru á móti lagningu Sundabrautar, en þar eru þó 69 prósent fylgjandi framkvæmdinni.
