Nýtt komu- og brottfararkerfi Schengen tekið í notkun

Innleiðing nýs komu- og brottfararkerfis Schengen hefur engin áhrif á ferðafrelsi Íslendinga og annarra ríkisborgara Schengen-ríkjanna, né þeirra sem hafa heimild til lengri dvalar innan svæðisins.

Keflavíkurflugvöllur, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, KEF-airport.
Á Keflavíkurflugvelli. Mynd/ÓKÁ

Hafin er innleiðing á nýju komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins. Fram kemur í frétt dómsmálaráðuneytisins að innleiðing kerfisins fari fram samtímis í öllum Schengen-ríkjum, að Kýpur undanskildu. Gert er ráð fyrir að kerfið verði að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum Schengen-ríkjanna í lok mars 2026.

Haft er eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að innleiðing nýja landamærakerfisins sé stórt skref í átt að öruggari  landamærum. 

„Þetta er liður í sameiginlegri stefnu Evrópuríkja um að efla öryggi og koma í veg fyrir að þeir sem ekki eiga erindi inn á svæðið komist inn í landið,“ segir hún.

Markmiðið með innleiðingu kerfisins er sagt vera að auka öryggi og bæta skilvirkni í landamæraeftirliti með samræmdri skráningu á för fólks yfir landamæri.

„Með komu- og brottfararkerfinu verður unnt að fá betri yfirsýn yfir dvöl einstaklinga frá ríkjum utan Schengen-svæðisins, draga úr misnotkun á dvalarheimildum og auðvelda framkvæmd frávísana og brottvísana,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Áréttað er að innleiðing kerfisins hafi engin áhrif á ferðafrelsi Íslendinga og annarra ríkisborgara Schengen-ríkjanna, né þeirra sem hafi heimild til lengri dvalar innan svæðisins.

„Markmiðið er að tryggja örugga og skilvirka för fólks án þess að skerða réttindi þeirra sem ferðast löglega innan svæðisins.“

Ráðuneytið segir að með innleiðingu komu- og brottfararkerfisins taki Ísland þátt í sameiginlegu átaki aðildarríkja Schengen til að tryggja örugg, skilvirk og samræmd landamæri til framtíðar. Kerfið styðji við alþjóðlegt lögreglusamstarf og bæti forvarnir gegn ólöglegri dvöl, skipulagðri brotastarfsemi og öðrum öryggisógnum sem kunni að tengjast ferðalögum milli ríkja.

„Komu- og brottfararkerfið er hluti af stærra heildarumhverfi snjallra landamæralausna sem stuðla að auknu öryggi í Evrópu og styrkja alþjóðlegt lögreglusamstarf í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali, vopnasmygli og hryðjuverkum.“

Fram kemur að Ísland taki virkan þátt í samstarfi við erlendar löggæslustofnanir og Landamærastofnun Evrópu (Frontex).

„Með innleiðingu nýrra landamærakerfa mun þetta samstarf styrkjast enn frekar með aukinni upplýsingamiðlun og styttri boðleiðum, þvert á landamæri.“

Þá segir að undirbúningur að innleiðingu kerfisins á öllu Schengen-svæðinu hafi staðið yfir um nokkurt skeið. Af því nokkur aðildarríki hafi ekki verið tilbúin til að hefja fulla notkun kerfisins hafi, á vettvangi Evrópusambandsins, verið ákveðið að taka það í notkun í áföngum frá og með 12. október á þessu ári.

Reglugerðir tengdar nýja kerfinu er að finna í Stjórnartíðindum.