Umhverfismatsskýrsla vegna Sundabrautar er nú aðgengileg í Skipulagsgáttinni. Veittur er frestur til 30. nóvember til að senda inn umsagnir eða athugasemdir. Samhliða því leitar Skipulagsstofnun umsagna frá lögbundnum umsagnaraðilum og leyfisveitendum.
„Vegagerðin í samvinnu við Reykjavíkurborg áformar lagningu Sundabrautar milli Sæbrautar og Kjalarness. Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta á svæðinu, stytta vegalengdir og bæta tengingar á milli svæða,“ segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Vegagerðins segir að í umhverfismatsskýrslunni séu lagðir fram tveir aðalvalkostir fyrir þverun Kleppsvíkur, þ.e. milli Sæbrautar við Sundahöfn og yfir á Gufunes.
Annars vegar sé um að ræða jarðgöng og hins vegar 30 metra háa brú.
„Báðir valkostir fylgja sömu veglínu frá Gufunesi um Geldinganes, Gunnunes, Álfsnes og upp á Kjalarnes. Eiðsvík, Leiruvogur og Kollafjörður verða þveruð með landfyllingum og brúm. Í umhverfismatsskýrslunni er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2027 og ljúki árið 2031.“
Í hnotskurn segir Vegagerðin muninn á brú og göngum vera eftirfarandi:
- Sundabrú er hagkvæmari kostur í framkvæmd og rekstri og styður betur við gangandi og hjólandi vegfarendur, sem og almenningssamgöngur. Hún hefur meiri sjónræn áhrif og takmarkar siglingar um Sundahöfn. Brú tengir Grafarvog og hafnarsvæðið betur inn á stofnvegi.
- Hærri brú hefur meiri áhrif á ásýnd en tryggir siglingar stærri skipa.
- Lægri brú er hagkvæmari en hefur meiri áhrif á starfsemi í Sundahöfn.
- Sundagöng hafa minni áhrif á ásýnd og hafnarstarfsemi, en eru dýrari í framkvæmd og rekstri. Þau styðja síður við fjölbreytta ferðamáta. Auk þess er þörf á aðgerðum til að draga úr loftmengun við gangamunna. Göng tengja Grafarvog og hafnarsvæðið síður inn á stofnvegi.
Haft er eftir Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar að umhverfismatsskýrsla Sundabrautar og kynning hennar sé mikilvægur áfangi í undirbúningi og vali á milli ólíkra leiða við lagningu Sundabrautar. Þar spili saman mat á áhrifum og hagkvæmni framkvæmdarinnar.
„Við hlökkum til uppbyggilegrar umræðu um fyrirliggjandi kosti og að geta innan tíðar hafið formlegt útboðsferli við það sem er líklega umfangsmesta einstaka verkefni tengt samgöngubótum sem ráðist hefur verið í hér á landi á undanförnum áratugum,“ segir hún
Þá kemur fram að haldnir verði þrír kynningarfundir í Reykjavík, þar sem fjallað verði um niðurstöður umhverfismats Sundabrautar og drög að aðalskipulagsbreytingu. Aðalvalkostir verða kynntir og fjallað um áhrif þeirra á íbúa og starfsemi í nágrenni Sundabrautar.
Fundað verður:
- október kl. 18:00-19:30. Klébergsskóli, Kjalarnesi
- október kl. 17:30-19:00. Hilton Reykjavík Nordica, Laugardal
- október kl. 17:30-19:00. Borgaskóli, Grafarvogi
Þá verða einnig kynningarfundir um niðurstöður umhverfismats Sundabrautar haldnir í Mosfellsbæ, á Akranesi og hjá Vegagerðinni:
- október kl. 17:30-19:00. Framhaldsskólinn Mosfellsbæ
- október kl. 9:00-10:30. Vegagerðin, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Fundurinn verður einnig í streymi.
- nóvember kl. 19:30-21:00. Ráðhúsinu, Akranesi
Niðurstöður umhverfismatsins má einnig finna á vefsjá verkefnisins hjá Vegagerðinni.