Farþegum til landsins fjölgaði um fimmtán prósent

Það sem af er ári hafa 3,9 milljónir farþega flogið með Icelandair, sem sagt er aukning um sjö prósent miðað við sama tímabil í fyrra.

Icelandair þota.
Mynd/ÓKÁ

Alls flutti Icelandair 479 þúsund farþega í september sem er aukning um fimm prósent á milli ára. Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að aukning í fólksflutningum til og frá Íslandi hafi verið mikill. Milli ára fjölgaði farþegum til landsins um 15 prósent og farþegum á leið úr landinu um 12 prósent.

Icelandair segir aukninguna endurspegla áherslu félagsins á flug til og frá landinu.

„Í mánuðinum voru 34% farþega á leið til Íslands, 17% frá Íslandi, 44% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands. Sætanýting nam 81,7% og stundvísi var 87,2%, sem er aukning um 0,6 prósentustig samanborið við síðasta ár,“ segir í tilkynningunni.

Það sem af er ári hafa 3,9 milljónir farþega flogið með Icelandair, sem sagt er aukning um sjö prósent miðað við sama tímabil í fyrra.

Þá hafi leiguflugsstarfsemi félagsins haldið áfram að vaxa með þriggja prósenta aukningu í seldum blokktímum á milli ára og 38 prósenta aukningu frá ársbyrjun.

Fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, hafi dregist saman um 12 prósent í september, en hafi aukist um tvö prósent það sem af er ári. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 1%.“

Í tilkynningunni þakkar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, starfsfólki og áframhaldandi áherslu á skilvirkni í rekstri þann góða árangur sem náðst hafi.

„Við höldum áfram að sjá hlutfall farþega til og frá landinu aukast. Heildarfjöldi farþega jókst um fimm prósent í samanburði við september 2024 sem er í takt við markmið okkar um að vaxa utan háannar til að jafna árstíðarsveiflu í starfseminni og til að hámarka nýtingu innviða félagsins,“ segir hann.

Bogi bendir á að í mánuðinum hafi Icelandair hafið flug til fjögurra nýrra áfangastaða og að síðar í þessum mánuði bætist sá fimmti við, en það sé Miami í Flórída. Þá segir hann mjög ánægjulegt að sjá áframhaldandi frábæra stundvísi hjá félaginu.