Samið um brýr yfir Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð

Um áramót stendur til að bjóða út þriðju og síðustu brúna yfir Djúpafjörð, 250 metra langa stálbogabrú. Að framvæmdum á Vestfjarðavegi loknum hefur leiðin um suðurfirði frá Reykjavík til Ísafjarðar styst um rúma 20 kílómetra.

Kort sem sýnir áfanga við vegaframkvæmd í Gufudalssveit.
Kort sem sýnir áfanga við vegaframkvæmd í Gufudalssveit. Vegagerðin bendir á að kortið sé nokkurra ára gamalt en gefi ágæta mynd af veglínu og framkvæmdum. Mynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur samið við norska fyrirtækið um Leonhard Nilsen & Sønner um byggingu tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Um er að ræða brýr á Djúpa­fjörð við Grónes og Gufu­fjörð. Samningsverð hljóðar upp á 1.850 milljónir króna, sem Vegagerðin segir um 200 milljónum króna yfir áætluðum verktakakostnaði.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að annars vegar sé um að ræða 58 metra langa brú yfir Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 metra langa brú yfir Gufufjörð. Þá sé innifalið í verkinu niðurrif á núverandi 119 metra bráðabirgðabrú á Gufufirði, ásamt efnisflutningum úr núverandi vinnuplönum auk gerðar grjót- eða rofvarnar.

Útboðið var auglýst 14. mars á þessu ári og tilboð opnuð 29. apríl. Tveir lægstbjóðendur töldust ekki uppfylla útboðsskilmála, að sögn Vegagerðarinnar, og því var ekki samið við þá.

„Ákveðið var að ganga til samninga við Leonhard Nilsen & Sønner as, Noregi. Lægstbjóðandi kærði málið til úrskurðarnefndar útboðsmála og því töfðust samningar nokkuð,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Úrskurðarnefnd útboðsmála veitti svo Vegagerðinni leyfi til að halda áfram með samninga í lok september.

Ásgeir Loftsson og Bergþóra Þorkelsdóttir.
Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóri nýframkvæmda hjá LNS, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, skrifa undir samning um byggingu tveggja brúa yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Mynd/Vegagerðin

Skrifað var undir verksaming um brúasmíðina í húsnæði Vegagerðarinnar í Garðabæ sl. föstudag. Undir samninginn rituðu Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar og Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóri nýframkvæmda hjá LNS.

„Verktakinn hefur strax undirbúning og byrjar fljótlega að vinna á svæðinu við að koma upp vinnubúðum. Samkvæmt samþykktri verkáætlun verða verklok 31. desember 2026.“

Þá segir Vegagerðin standa til að bjóða út þriðju og síðustu brúna yfir Djúpafjörð um áramót, en þar er um að ræða 250 metra langa stálbogabrú.

„Er það jafnframt síðasti áfanginn í vegagerð um Gufudalssveit. Áður er búið að brúa Þorskafjörð, leggja veg um Teigsskóg og gera tengivegi að sveitabæjum í Gufudal og Djúpadal, sem tímabundið eru hluti Vestfjarðavegar.“

Þá segir Vegagerðin að gerð 3,6 kílómetra langra vegfyllinga yfir Gufufjörð og Djúpafjörð sé langt komin, sem og gerð bráðabirgðabrúar vegna smíði varanlegu brúnna.

„Þegar öllum framkvæmdum verður lokið hefur leiðin um suðurfirði frá Reykjavík til Ísafjarðar styst um rúmlega tuttugu kílómetra.“