Icelandair tekur í notkun Airbus flughermi

Forstjóri Icelandair segir mikilvægan þátt í að halda uppi góðum flugsamgöngum til og frá landinu að hér sé aðstaða til að bjóða upp á fysta flokks þjálfun flugfólks.

Bogi Nils Bogason, Jón Magnússon, Davíð Ásgeirsson, Ásgeir Bjarni Lárusson, Halldór Karl Þórisson, Kári Kárason og Sylvía Kristín Ólafsdóttir.
Mynd af starfsfólki Icelandair fyrir fyrstu þjálfun: Bogi Nils Bogason, Jón Magnússon, Davíð Ásgeirsson, Ásgeir Bjarni Lárusson, Halldór Karl Þórisson, Kári Kárason og Sylvía Kristín Ólafsdóttir. Mynd/Icelandair

Icelandair hefur tekið í notkun nýjan flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar, nýjustu viðbótina við flota félagsins. Flughermirinn, sem framleiddur er af CAE í Montreal í Kanada, hefur verið settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði. 

„Flughermar eru notaðir til þjálfunar nýrra flugmanna sem og reglubundinnar þjálfunar starfandi flugmanna sem þurfa að fara í endurþjálfun tvisvar á ári,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Fram kemur að dótturfélag í eigu Icelandair og CAE, CAE Icelandair Flight Training, hafi rekið flugherma fyrir Boeing flugvélar Icelandair í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði frá árinu 2015 en fyrir þann tíma hafi hermaþjálfun flugmanna Icelandair farið fram erlendis.

„Flughermar félagsins í Hafnarfirði hafa einnig verið vinsælir hjá erlendum flugfélögum og því hefur rekstur þeirra gengið vel. Nýi Airbus hermirinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.“

Nýi Airbus flughermirinn er sagður mjög tæknilega fullkominn og í honum að finna nákvæma eftirlíkingu af stjórnklefa Airbus A320 flugvélafjölskyldunnar. Þá sé hermirinn búinn glænýju myndkerfi frá CAE sem veiti sérstaklega raunverulega upplifun fyrir flugmenn.

„Hermirinn líkir eftir flugeiginleikum vélanna auk þess sem unnt er að kalla fram óvæntar aðstæður, breytileg veðurskilyrði og fleira til þess að þjálfa viðbrögð flugmanna.“

Í þjálfunarsetri Icelandair séu svo einnig flughermar fyrir Boeing 737 MAX og Boeing 757 flugvélar, en Boeing 767 hermir sem áður hafi verið þar að finna hafi verið fluttur til Amsterdam, þar sem hann verði rekinn af CAE Amsterdam, en áfram í eigu CAE Icelandair Flight Training.

„Það er mjög ánægjulegt að vera komin með Airbus flugherminn í rekstur og geta þannig sinnt allri þjálfun á þessa flugvélategund hér á landi. Sem eyja í miðju Atlantshafinu reiðir Ísland sig á flug og mikilvægur þáttur í því að halda uppi góðum flugsamgöngum til og frá landinu er að hér sé aðstaða til þess að bjóða upp á fyrsta flokks þjálfun flugfólks,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Myndband af uppsetningu nýja Airbus flughermisins í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði.