Icelandair bætir Feneyjum við sem áfangastað sumarið 2026

Feneyjar eru þriðji áfangastaður Icelandair á Ítalíu. Flugfélagið segist vera að auka framboð til sólaráfangastaða, Norðurlanda og vinsælla áfangastaða vestanhafs.

Feneyjar.
Frá Feneyjum. Mynd/martin bennie á Unsplash

Icelandair hefur flug til Feneyja á Ítalíu næsta sumar. Í tilkynningu félagsins kemur fram að flogið verði þrisvar í viku frá 22. maí til 18. október, á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Borgin er þriðji áfangastaður Icelandair á Ítalíu, ásamt Róm og Mílanó.

„Feneyjar eru afar vinsæll ferðamannastaður með einstaka sögu og menningu sem laðar að ferðamenn alls staðar að úr heiminum,“ segir í tilkynningunni.

Borgin sé byggð á 118 eyjum og tengd með brúm og síkjum, sem geri hana að einni sérkennilegustu og rómantískustu borgum Evrópu.

„Þar má finna ríkulega sögu, glæsilega byggingarlist og fjölbreytta menningu – allt frá gotneskum dómkirkjum til líflegra markaða og listahátíða.“

Þá kemur fram að jafnframt verði flug til sólaráfangastaða aukið næsta sumar sem og flug til vinsælla áfangastaða á Norðurlöndum og þriggja áfangastaða í Norður-Ameríku, Nashville, Baltimore og Denver.

„Þá verður flug til Edinborgar nú í boði allt árið, í stað þess að vera einungis hluti af vetraráætlun og jafnframt verður flogið til Malaga allt árið utan janúar og febrúar.“

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að flugfélagið haldi áfram að þróa leiðakerfi sitt í takti við þarfir og óskir viðskiptavina. Með sveigjanlegu og öflugu leiðakerfi sé hægt að bregðast hratt við breytingum á markaði.

„Við sjáum tækifæri í því að auka hlutfall farþega til og frá Íslandi og endurspeglast það í því að við aukum sérstaklega tíðnina til sólaráfangastaða, Norðurlanda og valinna áfangastaða vestanhafs,“ segir hann.