Um nýliðna helgi hófst beint flug Icelandair til Malaga á Spáni. Flogið verður til borgarinnar einu sinni til tvisvar í viku frá 6. september til 7. janúar og svo frá 18. febrúar til 30. maí.
Fram kemur í tilkynningu Icelandair að flugtími til Malaga sé um fjórar klukkustundir og 45 mínútur.

„Við erum ánægð að bæta Malaga við leiðakerfi okkar. Borgin er vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga og opnar jafnframt ný tækifæri fyrir ferðamenn frá Spáni til að heimsækja Ísland,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair í tilkynningunni.
Bogi segir að í ár bæti flugfélagið við fjórum nýjum alþjóðlegum áfangastöðum við yfir vetrartímann, en það sé í takti við stefnu Icelandair um að vaxa utan háannatíma sumarsins.
„Með innkomu nýrra og hagkvæmari flugvéla í flotann opnast tækifæri fyrir stærri vetraráætlun. Þannig getum við nýtt innviði okkar betur yfir veturinn og á sama tíma stuðlað að minni árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu.“
Í lýsingu Icelandair á nýja áfangastaðnum segir að Malaga sé hafnarborg í Andalúsíu á Suður-Spáni, þekkt fyrir menningu, sögu og sólríkar strendur. Þá sé borgin heimabær listamannsins Pablo Picasso og bjóði upp á fjölbreytta safnamenningu, líflega matarupplifun og einstakan arkitektúr.
Icelandair segir Malaga vera frábæran upphafsstað fyrir ferðalög um Costa del Sol, svæði sem laði að sér ferðamenn allt árið um kring.