Icelandair flýgur til Istanbul tvisvar til þrisvar í viku

Samstarf Icelandair og Turkish Airlines hófst árið 2023. Með nýrri flugleið til Istanbul fjölgar tenginum milli Íslands og Asíu og Miðausturlanda.

Icelandair, Istanbul
Í fyrsta flugi Icelandair til Istanbul skipuðu áhöfn Hekla Aðalsteinsdóttir, Tuna Dís Olgudóttir, Birta Björg Alexandersdóttir og Hólmfríður Björk Óskarsdóttir, flugfreyjur, Árni Björnsson, flugstjóri og Aron Kári Kristófersson flugmaður. Mynd/Icelandair

Icelandair hóf í dag flug á milli Íslands og Istanbul í Tyrklandi. Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að fyrsta flugið hafi farið í loftið síðdegis í dag, en flogið verði til borgarinnar tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Flugið er sagt taka um fimm og hálfan tíma.

„Um leið og þessi spennandi áfangastaður bætist við öflugt leiðakerfi Icelandair, munu Icelandair og Turkish Airlines efla enn frekar samstarf sitt um sammerkt flug,“ segir Icelandair.

Félögin hófu samstarf árið 2023 en með þessari nýju flugleið eru viðskiptavinir beggja félaga sagðir geta nýtt sér enn betri tengingar á milli Íslands og Asíu og Miðausturlanda.

„Með betri tengingum mun áfangastöðum í tengiflugi milli flugfélaganna fjölga auk þess sem ferðatími styttist.“

Istanbul, stærsta borg Tyrklands, liggur beggja vegna Bosporussunds, sem tengir Svartahaf og Marmarahaf. Borgin er því sögð eins konar brú milli Asíu og Evrópu, bæði hvað varðar landafræði og menningu.

„Istanbul býr yfir ríkri sögu sem hægt er að rekja aftur til sjöundu aldar fyrir Krist og þar er að finna fjölda sögulegra bygginga og spennandi safna. Basarinn mikli, sem hefur starfað frá árinu 1461, er einn elsti og stærsti yfirbyggði markaður heims.“

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að Istanbul sé spennandi viðbót við öflugt leiðakerfi flugfélagsins.

„Beint flug til borgarinnar gefur tækifæri til að nýta enn frekar samstarf okkar við Turkish Airlines um þægilegar og skilvirkar tengingar austur á bóginn, meðal annars til þess að mæta þeirri auknu eftirspurn sem við höfum fundið fyrir frá Asíu til Íslands.“

Hann segir félagið koma til með að halda áfram að útvíkka leiðakerfi sitt og samstarf við leiðandi flugfélög. Þannig styrki það enn frekar tengingar Íslands við umheiminn sem skili ávinningi fyrir ferðaþjónustu, viðskiptalífið og almenning á Íslandi.