Icelandair og Alaska Airlines hafa tilkynnt um aukið samstarf en félögin hófu fyrst samstarf fyrir 15 árum síðan. Í tilkynningu Icelandair segir að með auknu samstarfi félaganna geti viðskiptavinir Alaska Airlines bókað tengiflug með Alaska og Icelandair til fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu.
„Þá mun áfangastöðum sem viðskiptavinir Icelandair geta bókað í tengiflugi til Vesturstrandar Bandaríkjanna og annarra áfangastaða Alaska Airlines fjölga.“
Viðskiptavinir komi til með að geta bókað tengiflug á milli flugfélaganna tveggja til enn fleiri áfangastaða í einum miða. Að auki sé samstarf á milli vildarklúbba þannig að hægt sé að safna og nota punkta á milli flugfélaganna.
Haft er eftir Helga Má Björgvinssyni, yfirmanni alþjóðatengsla hjá Icelandair, að mjög ánægjulegt sé að greina frá auknu samstarfi við Alaska Airlines.
„Með því getum við boðið upp á enn öflugri tengingar á milli umfangsmikils leiðakerfis Icelandair í Evrópu og áfangastaða Alaska á Vesturströnd Bandaríkjanna og víðar. Samstarfið er til marks um sameiginlega sýn félaganna tveggja um að veita aukna þjónustu og framúrskarandi ferðaupplifun,“ segir hann.
Þá er vitnað í Brett Catlin, forstöðumannvildarklúbbs, samstarfs og sölu hjá Alaska Airlines, sem segir að undanfarin 15 ár hafi Alaska og Icelandair unnið saman að því að efla tengingar fyrir farþega félaganna um allan heim.
„Nú byggjum við enn frekar ofan á samstarfið, bætum við ferðamöguleikum og þeim þægilegu tengingum sem viðskiptavinir okkar þekkja vel – með góðum aðgangi að Evrópu með Icelandair og öflugum tengingum Alaska Airlines um gjörvalla Vesturströnd Bandaríkjanna, Hawaii og til Asíu.“
Catlin segir Alaska Airlines fagna þessum nýja áfanga í samstarfi sínu við Icelandair og félagið spennt fyrir því að gera alþjóðleg ferðalög enn aðgengilegri og þægilegri.