Hafið er áætlunarflug Icelandair á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði. Fyrsta fluginu var fagnað á Hornafjarðarflugvelli í dag, að því er fram kemur í tilkynningu Icelandair. Lent var á Höfn klukkan 11:30 þar sem fulltrúar úr bæjarstjórn Hornafjarðar tóku á móti farþegum og áhöfn.
Flogið verður fimm sinnum í viku á 37 sæta flugvélum af tegundinni DHC-8-200. Höfn er fjórði áfangastaður Icelandair innanlands en fyrir flýgur félagið til Akureyrar, Ísafjarðar og Egilsstaða.
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að mjög ánægjulegt sé að bæta Höfn við leiðakerfi Icelandair innanlands.
„Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Suðausturlandi en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að fá þennan vinsæla áfangastað ferðamanna inn í alþjóðlegt sölu- og dreifikerfi okkar og gera hann aðgengilegan viðskiptavinum í Evrópu og Norður-Ameríku. Jafnframt munu farþegar til og frá Höfn nú geta nýtt sér öfluga þjónustu Icelandair, þar með talið stafræna þjónustu og vildarklúbb,“ segir hann.
Myndir frá flugvellinum á Höfn í dag:

