Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), átelur stjórnvöld fyrir að hafa ekki tekið betur á ófermdarástandi bílastæðamála en raun ber vitni.
Í umfjöllun á fréttavef samtakanna er vitnað til hans um að gullgrafaræði skýri þá þróun sem verið hafi í bílastæðamálum. Um sé að ræða „græðgisvæðingu“ sem fengið hafi að ganga allt of langt.
„Hann skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stigið fastar niður nú þegar,“ segir þar.

Vitnað er til umfjöllunar í kvöldfréttum Sýnar þar sem Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, sagði kvartanir vegna bílastæðamála vera daglegt brauð hjá stofnuninni og það þrátt fyrir að stofnunin hafi í byrjun júní sektað fimm bílastæðafyrirtæki fyrir að brjóta reglur um verðmerkingar og góða viðskiptahætti.
Vitan er til orða Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra FÍB, í samtali við Vísi um að félaginu hafi borist fjölmargar ábendingar og tilvik.
„Við fórum fyrst að beina sjónum okkar sérstaklega að þessum málum fyrir liðlega tveimur árum og svo síðastliðið vor þá kærðum við nú fyrirtækin fyrir óeðlilegar merkingar og óeðlilega viðskiptahætti og annað í þeim dúr og kvörtuðum yfir að þarna væri græðgisvæðing sem hefði gengið allt of langt og það þyrfti að setja reglur,“ segir hann við Vísi.

Fram kemur að Runólfur hafi fundað um málið með síðustu ríkisstjórn. Hann bindi þó vonir við að ráðherra neytendamála geri eitthvað í málinu, sem sjálfur hafi nýverið fengið rukkun vegna bílastæðis.
„Ég skil ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stigið fastar niður þegar,“ segir Runólfur við Vísi.
Hann segir virðast sem ákveðið „gullgrafaraæði“ sé í gangi. Þróunin hafi ekki bara áhrif á ferðamenn sem hingað koma heldur líka heimamenn sem vilji njóta náttúrunnar.
„Það er með ólíkindum hvað gjaldtökustæðum úti á landi hefur fjölgað, víða eru þetta bara malarplön og þú kemur á stæði og það skiptir ekki máli hvort þú stoppar þar í fimm mínútur eða einn sólarhring, það er þúsund krónur og þetta er orðinn dragbítur fyrir venjulegt fjölskyldufólk á Íslandi að fara um landið með börnin og sýna þeim einhverja svona náttúruvæna staði sem við viljum kynnast á lífsleiðinni,“ segir Runólfur við Vísi.