Nýjasti meðlimur Hyundaifjölskyldunnar er borgarrafbílinn Inster á nú sinn stað í sýningarsal Hyundai við Kauptún ásamt reynsluakstursbílum sem hægt er að prófa, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram að bíllinn hafi á dögunum verið kosinn „Rafbíll ársins“ hjá World Car Awards 2025 og hafi að auki verið í öðru sæti í baráttunni um Heimsbíl ársins á sömu verðlaunahátíð í New York. Von er á fyrstu sendinum bílsins til landsins fyrir lok sumars.
Þrjár gerðir í boði
Í boði eru sagðar þrjár útfærslur af bílnum, en það eru grunngerðin Comfort, Limited útgáfa og svo vandaðasta gerðin Calligraphy.
„Grunngerð Inster, sem er fjögurra sæta, er búin 97 hestafla rafmótor og 42 kWh rafhlöðu sem gefur allt að 327 km drægni. Báðar hinar gerðirnar, Limited og Calligraphy eru fimm sæta, búnar 115 hestafla rafmótor og 49 kWh rafhlöðu. Drægni Limited er allt að 370 km og Calligraphy allt að 360 km sem eykur notagildi beggja gerða talsvert. Inster er unnt að hlaða úr 10% í 80% á um 30 mínútum. Hámarkshraði er á bilimu 140 til 150 km/klst. eftir gerðum og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 10,6 sek. til 11.7 sek.“
Farangursrými
Inster er sagður um það bil 3,8 m að lengd og 1,6 m breiður. Vegna háreistrar hönnunar farþegarýmisins sé bíllinn afar rúmur að innan og með háum rúðum sem veiti góða útsýn.
„Farangursrýmið er á bilinu 238 til 351 lítri. Hægt er að halla aftursætisbökum til að hafa það þægilegra, færa aftursætin aftur um 16 cm til að auka fótarými og hámarka síðan farangursplássið með því að fella niður sætisbökin. Þess má geta að öll sætisbök geta fallið vel niður að sætunum og með því að leggja dýnu yfir er vel gerlegt að leggjast og fá sér blund, enda nettur bíll með stór plön!“ segir í tilkynningunni.
Notadrjúg þægindi
Í stjórnborði farþegarýmisins eru svo tveir 10,25 tommu stafrænir skjáir, annar fyrir mælaborð og hinn fyrir upplýsingar og afþreyingu sem sögð er veita fjölbreyttar upplýsingar um bílinn og aðgang að ýmsum öppum, s.s. fyrir tónlist og fleira.
„Að auki eru innstungur fyrir mismunandi viðtæki til reiðu. Þá er einnig stæði fyrir þráðlausa símahleðslu í miðjustokki auk þess sem í vönduðustu gerðinni er hægt að tengja Inster við síma og snjallúr til að læsa og aflæsa bílnum svo fátt eitt sé nefnt.“
Forpöntun í boði
Inster er jafnframt sagður búinn öllum helstu aðstoðar- og öryggiskerfum fyrir ökumann, en nánari útlistun á eiginleikum, auk möguleikans á að forpanta eintak, er að finna á heimasíðunni Hyundai.is. Bíllinn er sagður kosta á bilinu 3.790 til 4.990 þúsunda króna að meðtöldum styrk úr Orkusjóði.











