Viðskiptavinir velja sína afsláttarstöð 

Viðskiptavinir N1 geta nú sjálfir valið hvar þeir njóta lægsta eldsneytisverðsins – á 96 stöðvum um land allt.  

Með nýjung í N1 appinu geta viðskiptavinir skráð sig inn og valið þá stöð sem hentar þeim best, hvort sem hún er næst heimili, vinnu, ferðalagi eða þar sem kaffið er best.  

Fram kemur í tilkynningu frá N1 að kynningarherferðin „Stöðin mín“ komi til með að vara í 12 vikur eða til ágústloka. Á þeim tíma geti viðskiptavinir N1 breytt um stöð að vild á 30 daga fresti.

„Um leið er ekki lengur nauðsynlegt að elta verð – með nýju lausninni færist valdið í hendur viðskiptavina. Áfram verður fast lágt verð í boði á fimm staðsetningum N1 óháð herferðinni,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Magnúsi Hafliðasyni, framkvæmdastjóra N1, að fyrirtækið vilji ekki binda viðskiptavini við ákveðnar staðsetningar eða vikur. „Þeir eiga einfaldlega að fá lægsta verðið þar sem þeim hentar. Þetta er skref í átt að einfaldari og betri þjónustu,“ segir hann.

Lægsta verðið og 2 punktar fyrir hvern lítra  

Fram kemur að viðskiptavinir félagsins sem nýti sér þjónustuna fá áfram tvo N1 punkta fyrir hvern lítra af eldsneyti. Hver punktur jafngildir einni krónu og má nota til að greiða fyrir eldsneyti, hraðhleðslur, vörur og þjónustu hjá N1. Punktar safnast sjálfkrafa við notkun á N1 appinu eða N1 korti.  

Þá kemur fram að með nýjustu uppfærslu á N1 appinu sé nú hægt að opna fyrir dælur og greiða fyrir eldsneyti með N1 punktum, Apple Pay, Google Pay eða greiðslukorti.