Flugfélagið Play flutti 128.119 farþega í apríl 2025, samanborið við 122.217 farþega á sama tíma í fyrra, sem jafngildir 5% aukningu milli ára. Aukningin er sögð endurspegla áframhaldandi eftirspurn á kjarnamörkuðum PLAY og að breytingar á leiðakerfinu, þar sem aukin áhersla er á sólarlandaflug, séu að skila árangri.
Í tilkynningu Play kemur fram að sætanýting í apríl 2025 hafi verið 82,6%, samanborið við 85,1% í apríl 2024.
„Þessi breyting skýrist að mestu ákvörðun PLAY að leggja aukna áherslu á sólarlandaflug frá Íslandi til Suður-Evrópu. Slíkar leiðir eru jafnan með lægri sætanýtingu þar sem ekki er sama tengifarþegaflæði (VIA) inn á leiðirnar, en skila að jafnaði hærri tekjum.“
Leiðakerfið er nú sagt innihalda fleiri beinar flugferðir til Suður-Evrópu þar sem flestir farþegar ferðast beint milli áfangastaða.
Þá kemur fram að hlutfall farþega sem ferðuðust frá Íslandi hafi aukist í 36,9% í apríl 2025, úr 30,0% árið áður. Sama þróun sjáist í farþegum til Íslands, þar sem hlutfallið hafi farið úr 27,0% í 31,8%. Hlutfall tengifarþega (VIA) hafi hins vegar lækkað í 31,3%, samanborið við 43,0% í apríl 2024.
„Þessi þróun endurspeglar breytta áherslu PLAY á að þjónusta hinn mikilvæga markað farþega til Íslands og vaxandi markað frá Íslandi.“
Stundvísi Play var 92,7% í apríl 2025, samanborið við 89,4% í apríl 2024, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins og niðurstaðan sögð undirstrika áherslu félagsins á stundvísi og áreiðanleika.
Horfur fyrir sumarið 2025 eru einnig sagðar jákvæðar, þar sem sjá megi framfarir á sætanýtingu og einingatekjum, borið saman við sama tímabil í fyrra. Bókunarstaða farþega á leið til og frá Íslandi sé góð og auki Play enn úrvalið til sólarlandaáfangastaða með því að bjóða upp á tvo nýja áfangastaði í sumar, Antalya í Tyrklandi og Faro í Portúgal.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play:
„Frammistaðan í apríl sýnir að nýja stefnan okkar er að skila árangri og á samstarfsfólk mitt hjá PLAY allt lof skilið fyrir að láta nýja viðskiptalíkanið okkar verða að veruleika. Við sjáum mikla eftirspurn á lykil mörkuðum og áherslan á flug til sólarlanda er vel tekið. Þó að þessar leiðir séu jafnan með aðeins lægri sætanýtingu, eru þær með hærri tekjur og aukna arðsemi. Bókunarstaðan er góð fyrir komandi mánuði og við sjáum fram á gott sumar þar sem við munum leggja okkur öll fram við að veita farþegum okkar frábæra þjónustu á góðu verði.“