Starfsgreinasambandið leggur til að verð og gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5% út gildistíma kjarasamninga og bendir á að lækkun verðbólgu gæti sparað samfélaginu um 87 milljarða króna árlega.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) leggur til þjóðarsátt um verðstöðugleika þar sem verð og gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5% út gildistíma núverandi kjarasamninga, með það að markmiði að lækka verðbólgu úr 5,6% í 3,6%.
Fram kemur í bréfi sem SGS sendi sveitarstjórnarfulltrúum víðs vegar um land, dagsettu 16. september, að ríki, sveitarfélögum, atvinnulífinu, verslun og þjónustu og öðrum sem hafa áhrif á verðmyndun er boðið að taka þátt í átakinu.
Nái verðbólga niður um tvö prósentustig telur SGS að það myndi minnka fjármagnskostnað og skila samfélaginu um 87 milljörðum króna á ári í formi lægri verðbóta á verðtryggðum skuldum. Fyrir sveitarfélögin ein og sér, sem skulda um 480 milljarða króna í verðtryggðum lánum, myndi lækkunin þýða um 10 milljörðum króna lægri verðbætur, að mati sambandsins.
„Enginn má skjóta sér undan ábyrgð,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, í bréfinu, og bætir við að „þetta getur þó aðeins tekist með sameiginlegu átaki.“ Óskað er eftir því að sveitarfélögin svari erindi SGS um hvort þau ætli að taka þátt í þjóðarsáttinni.
SGS eru landssamtök 18 stéttarfélaga með um 44.000 félagsmenn innan sinna vébanda.