Faxaflóahafnir hafa opnað uppfærða umfangsmikla útisýningu á Miðbakka Gömlu hafnarinnar í Reykjavíkur sem varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur síðastliðin 150 ár, frá árinu 1870 til okkar daga.
Í tilkynningu Faxaflóahafna segir að sýningin Sjóslys við Ísland byggi á umfangsmikilli heimilda- og rannsóknarvinnu og sýni á myndrænan hátt sögu skipa yfir 12 tonnum að stærð sem hafi farist eða skemmst svo mikið að þau urðu ekki sjófær á ný.
„Markmiðið er að gera almenningi kleift að sjá með skýrum hætti hvernig sjóslys hafa þróast í takt við breytingar á skipastól, fiskveiðum, siglingum og öryggismálum á sjó,“ segir þar.
Á sýningunni eru hundruð sjóslysa kortlögð og sett fram með grafískum hætti.
Faxaflóahafnir segja sýninguna ekki bara samantekt á skipströndum og sjóslysum heldur sé hún líka minning um þá sem lagt hafi líf sitt í hættu við Íslandsstrendur og um þá sem ekki hafi snúið heim úr ferð sinni.
„Höfundar vilja varðveita þessa sögu og gera hana aðgengilega nýjum kynslóðum í samstarfi við Faxaflóahafnir sem einnig vilja deila þessari sögu.“
Sérstök áhersla er sögð lögð á þá atburði sem mest áhrif hafi haft á slysasöguna, þar á meðal stórslys tengd hamförum í veðri, aukna umferð erlendra fiskiskipa við Ísland og áhrif heimsstyrjaldanna á siglingar við landið.
„Umfangsmiklar upplýsingar áður ókunnar hafa komið fram um frönsk skip og hefur þeim verið bætt inn á þessa sýningu.“
Fram kemur að á síðari hluta 19. aldar hafi franskir fiskikútterar verið áberandi við suður- og suðausturströnd landsins og skip þeirra koma víða við sögu á sýningunni.
„Eftir aldamótin 1900 tóku breskir og þýskir togarar við sem fjölmennasti hópur erlendra skipa sem fórust við Íslandsstrendur.“

Samhliða aðalsýningunni eru gestir sagðir geta nálgast nánari upplýsingar um einstök skip og sjóslys á sérstökum upplýsingaspjöldum sem staðsett séu í sýningarstöndum á Miðbakka.
„Við gerð sýningarinnar var stuðst við bestu fáanlegu heimildir, bæði íslenskar og erlendar. Leitast hefur verið við að sannreyna upplýsingar eftir fremsta megni, enda geta eldri heimildir verið bæði ófullkomnar og misvísandi.“
Höfundar sýningarinnar eru Guðjón Ingi Hauksson, sagnfræðingur, Guðmundur Viðarsson, ljósmyndari og sýningastjóri, og Agnar Jónas Jónsson, skipasmiður. Kortagerð annaðist Hans Hansen og prentun var á höndum Merkingar ehf.
„Sjóslys við Ísland er tileinkuð minningu þeirra þúsunda sjófarenda sem hafa orðið fyrir sjóslysum við Íslandsstrendur frá upphafi vélaaldar til okkar daga.“