Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí, samkvæmt nýrri Hagsjá greiningardeildar Landsbankans. Þetta er í fyrsta sinn á árinu sem vísitalan lækkar milli mánaða, en hún stóð í stað í apríl.
Fram kemur í Hagsjánni að árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og sé talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hafi því lækkað um 2,4% á milli ára og sé maí sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða.
Segir að lækkunina í maí megi einkum rekja til 1,9% lækkunar á verði sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu. Verð á sérbýli sveiflist mun meira en verð á fjölbýli, enda séu sérbýli færri og fjölbreyttari. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hafi á móti hækkað lítillega.
„Þróun verðs á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, sem gefur skýrari mynd af undirliggjandi þróun íbúðaverðs, hefur haldist nokkuð stöðug á síðustu misserum,“ segir í Hagsjánni.
Bæði fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni hafi hækkað um 0,3% í mánuðinum og verð á sérbýli á landsbyggðinni um 0,4%. Á síðustu tólf mánuðum hafi íbúðaverð hækkað um 2,2%, eða um 2,5% á höfuðborgarsvæðinu og 1,3% á landsbyggðinni.
Kaupsamningum fækkað um 27%
Þá kemur fram að velta á íbúðamarkaði sé töluvert minni fyrstu fimm mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Alls hafi um 750 kaupsamningar verið undirritaðir í maí, álíka margir og í apríl, en undirrituðum kaupsamningum hafi fækkað um 27% á milli ára í þeim mánuði. Sé litið til fyrstu fimm mánaða ársins hafi kaupsamningum fækkað um 15% frá sama tímabili í fyrra.
„Þessar tölur benda til þess að enn sé rólegt á íbúðamarkaði. Verðþróun er afar hófstillt, þó enn virðist vera nokkur gangur í sölu,“ segir í Hagsjá greiningardeildar Landsbankans.