Versti ljósmyndarinn fundinn

127.642 manns frá 178 löndum tók þátt í keppni Icelandair um versta ljósmyndara heims. Einn umsækjandi hefur verið valinn. Flugfélagið segir fólk hætt að treysta gjörunnum glansmyndum.

Mynd/samsett

Icelandair hefur valið Parísarbúann Blanche Mortemard sem versta ljósmyndara heims. Valið er niðurstaða alþjóðlegrar samkeppni sem félagið stóð fyrir, en alls bárust 127.642 umsóknir frá 178 löndum.

„Um er að ræða hluta af Íslandskynningarherferð sem hefur náð augum tuga milljóna um allan heim,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Fram kemur að Blanche hafi í umsóknarferlinu sýnt einstaka hæfileika við að taka endurtekið slæmar ljósmyndir, þar sem lítið fari fyrir fókus, myndbyggingu eða lýsingu.

„Herferðin, sem staðið hefur yfir í á annað ár, hófst á hvatningu til gervigreindarfyrirtækja, samfélagsmiðla og myndabanka um allan heim um að hætta að búa til myndir af Íslandi með hjálp gervigreindar. Náttúra Íslands þyrfti ekki á lagfæringum að halda.“

Til þess að sanna mál sitt hafi Icelandair hafið leit að versta ljósmyndara heims sem nú fer í tíu daga ljósmyndaferð um landið. Afraksturinn verður svo sýndur á ljósmyndasýningum víða um heim.

Blanche Mortemard, sigurvegari samkeppni Icelandair.
Blanche Mortemard, sigurvegari samkeppninnar. Mynd/Icelandair

Blanche Mortemard, sigurvegari keppninnar, segir í tilkynningunni að vinir hennar og ættingjar hafa oft spurt hana hvers vegna hún taki svo glataðar myndir.

„Það er mjög ánægjulegt að geta loksins svarað því: Ég hef verið að æfa mig fyrir einmitt þetta verkefni,“ segir hún.

Samkeppni Icelandair fagni hinu ófullkomna og sé líklega eina ljósmyndasamkeppnin sem hún hafi nokkurn tíma átt möguleika á að vinna.

„Ég hlakka til að ferðast um landið og upplifa náttúruna. Myndirnar sem ég hef séð eru mjög fjölbreyttar – jöklar, eldfjöll, svartar strendur ogfossar en ég er ekki sannfærð um að þetta sé allt raunverulegt.“

Hún segist munu mynda af sama öryggi og atvinnuljósmyndari, nema án kunnáttunnar.

„Ef ég get gert náttúru Íslands góð skil í myndum, geta það allir!“

Þá er haft eftir Gísla Brynjólfssyni, markaðsstjóra Icelandair, að um hafi verið að ræða mjög skemmtilegt ferli og ánægjulegt hafi verið að sjá hversu margir tóku þátt.

„Við settum markið hátt og bjuggumst við nokkrum tugum þúsunda þátttakenda en að um 130 þúsund umsóknir hafi borist er framar björtustu vonum,“ segir hann.

Gísli segir þau hjá Icelandair telja ástæðuna fyrir árangrinum vera þá að fólk sé hætt að treysta þeim gjörunnu glansmyndum sem það sjái og trúi frekar myndefni sem sé raunverulegra og hversdagslegra.