
Meðalævilengd karla á Íslandi var 81 ár árið 2025 og meðalævilengd kvenna rétt rúm 84 ár, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
„Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans,“ segir í frétt stofnunarinnar.
Fram kemur að frá árinu 1990 hafi karlar bætt við sig rúmlega fimm árum og konur tæplega fjórum í meðalævilengd.
„Ævilengd karla jókst um 0,1 ár frá árinu 2024 á meðan hún minnkaði hjá konum um 0,1 á milli áranna 2024 og 2025.“
Í Evrópu er ungbarnadauði þriðji minnsti á Íslandi
Hagstofan segir að á síðasta ári hafi látist 2.658 einstaklingar sem búsettir hafi verið á Íslandi, 1.367 karlar og 1.291 konur.
„Dánartíðni var 6,8 látnir á hverja 1.000 íbúa og stóð í stað á milli ára.“
Um leið segir að 2025 hafi ungbarnadauði hér á landi mælst 0,9 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum, sem sé lækkun um 0,5 frá árinu 2024.

„Þegar er horft er á tíu ára tímabil (2015–2024) var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 2,0 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum og var ungbarnadauði einungis fátíðari en hér á landi í Andorra (1,8), Eistlandi (1,9), Finnlandi (1,9) og Slóveníu (2,0).“
Fyrir sama tímabil hafi ungbarnadauði að meðaltali verið 2,1 barn í Noregi og Svartfjallalandi, 2,2 í Svíþjóð og 2,5 í Tékklandi og Liechtenstein.
„Tíðastur var ungbarnadauði í Aserbaísjan, 11,1 af hverjum 1.000 lifandi fæddum yfir tímabilið 2015-2024 samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.“
Ævilengd háskólamenntaðra jókst mest
Hagstofan tiltekur jafnframt að á síðasta ári hafi ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með grunnskólamenntun verið 52,5 ár á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við því að lifa 48,5 ár til viðbótar.
„Konur með framhaldsskólamenntun gátu vænst þess að lifa tæplega þremur árum lengur en stallsystur þeirra með grunnskólamenntun eða í 55,1 ár frá 30 ára aldri.“
Munurinn hafi verið aðeins meiri á meðal karla, þar sem ólifuð ævi 30 ára karla með framhaldsskólamenntun var að meðaltali 52,2 ár eða 3,7 árum lengri en karla með grunnskólamenntun.
„Þrítugir háskólamenntaðir einstaklingar gátu átt von á því að lifa mun lengur en þeir sem minni menntun höfðu.“
Þannig hafi ætluð ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með háskólamenntun verið 56,4 ár eða tæpum fjórum árum lengri en þrítugra kvenna með grunnskólamenntun árið 2025.
„Ólifuð ævilengd 30 ára karla með háskólamenntun var 53,9 ár eða 5,4 árum lengri en þrítugra karla með grunnskólamenntun.“
Á tímabilinu 2016 til 2025 hafi ævilengd háskólamenntaðra aukist mest, eða um 0,9 ár, á meðan hún hafi aukist um 0,5 ár á meðal framhaldsskólamenntaðra, en á meðal grunnskólamenntaðra hafi hún hins vegar minnkað um 0,5 ár.
