Kröfu um læknisvottorð vegna aldurs seinkað um tíu ár

Heilsa fólks er sögð hafa batnað samhliða hækkandi lífaldri og reynslan sýni að við endurnýjun ökuskírteina hjá 65 ára gömlu fólki sé læknisvottorð nær undantekningalaust veitt.

Strætisvagn í umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/ÓKÁ

Breyting á reglugerð um ökuskírteini felur í sér að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára áður.

Í tilkynningu innviðaráðuneytisins er farið yfir nýjar breytingar Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á reglugerð um ökuskírteini og aldursbreytingin sögð sú veigamesta.

„Þessi breyting á reglugerðinni var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og gera það mannlegra og nútímalegra,“ segir þar.

Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru sögð þau að heilsa fólks hafi batnað samhliða hækkandi lífaldri og reynslan sýnt að við endurnýjun ökuskírteina hjá þessum aldurshópi séu læknisvottorð veitt nær undantekningalaust.

„Breytingarnar munu því draga úr álagi sem skapast vegna reglulegrar endurnýjunar ökuskírteina og er því jákvæð breyting fyrir eldri ökumenn auk þess að draga úr óþarfa vottorðaskrifum heimilislækna.“ 

Áréttað er að eftir sem áður gildi meginregla umferðarlaga um að tryggt sé að ökumenn séu líkamlega og andlega færir um að stjórna ökutæki í hvert sinn, sama á hvaða aldri þeir eru.

Aðrar breytingar á reglugerð um ökuskírteini:

  • Umsækjandi um ökuskírteini fær nú rýmri tíma til að ljúka verklegu prófi frá því að hann stóðst bóklegt próf, eða allt að tólf mánuði. Samkvæmt fyrri reglugerð gildir bóklegt próf í sex mánuði en í tólf mánuði vegna tiltekinna flokka.
  • Kveðið er á um fimm ára gildistíma starfsleyfis ökuskóla.
  • Kveðið er með skýrari hætti en áður um að atvinnubílstjórar eigi að ljúka endurmenntun fyrir hverja endurnýjun ökuréttinda. Gildistími endurmenntunar er birtur í ökuskírteini og því bundinn gildistíma ökuskírteinis sem er til fimm ára.
  • Felld er burt krafa um að í sjálfskiptri kennslubifreið skuli vera gírstöng eða annar slíkur búnaður í stað fótstigs fyrir kúplingu svo að ökukennari geti rofið aflrás. Samkvæmt Samgöngustofu er kröfunni ekki framfylgt og sjálfskiptar kennslubifreiðir ekki búnar slíkum búnaði.