Þegar tvö full tungl verða innan sama mánaðar er seinna fulla tunglið stundum nefnt blátt tungl eða blámáni. 31. maí næstkomandi verður seinna fulla tungl mánaðarins, en tunglið var líka full 1. maí.
Oft hitta full tungl rétt á mánuði ársins, þannig að hver beri eitt fullt tungl og þá 12 full tungl á einu ári, en af því það tekur tunglið 29 og hálfan dag að ferðast kring um jörðu, svokallaður tunglmánuður, þá eru sum árin 13 full tungl í almanaksárinu.
Á Vísindavefnum segir að vegna tímamismunar á tunglmánuði og almanaksmánuðunum geti átt sér stað að í mánuði sem sé 30 eða 31 dagur gæti tvisvar verið fullt tungl, einu sinni í upphafi mánaðarins og aftur við lok hans.
Eins geti komið fyrir að tunglið nái ekki að verða alveg fullt í febrúar, sem aðeins 28 eða 29 dagar að lengd, eftir því hvort hlaupár er.
„Oftast er þó fullt tungl einu sinni í mánuði,“ segir þar.
Síðst voru tvö full tungl innan sama mánaðar í ágúst 2023 og næst verður það í desember 2028.
Þá segir að á Vesturlöndum sé fylgt svokölluðu sólmiðuðu tímatali (e. solar calendar) með áhersla á að hvert ár sé sem næst hvarfári að lengd í dögum talið en tunglmánuðum sé gefinn lítill gaumur.
„Einn helsti galli slíks tímatals er að almanaksmánuðirnir passa engan veginn við kvartilaskipti tunglsins.“
Bent er á að til séu aðrar gerðir tímatala sem láti hvern mánuð vera sem næst einum tunglmánuði að lengd.
„En þá er fullt tungl nákvæmlega einu sinni í mánuði, alltaf á sama tíma.“