Nýtt stofnmat Náttúrufræðistofnunar bendir til þess að fullorðnum refum hafi fækkað umtalsvert á tímabilinu 2011 til 2024.
Samkvæmt matinu voru um 4.700 fullorðin dýr í íslenska refastofninum vorið 2024, en vorið 2011 var stofninn metinn um 7.800 dýr, að því er fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar.

Samkvæmt talningunni nemur samdrátturinn um 40 prósentum, en breytingin getur þó að hluta skýrst af breyttu vinnulagi við talninguna.
Á vef Náttúrufræðistofnunar kemur fram að í nýja stofnmatinu hafi stofnstærð refsins verið metin að vori og nái til fjölda kynþroska einstaklinga í upphafi tímgunar.
„Það er breyting frá eldra mati, þar sem stofnstærð var metin að haustlagi og yrðlingar sem fæddust sama sumar voru taldir með.“
Fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar að nákvæmara hafi verið talið að meta fjöldann að vori því lífslíkur yrðlinga á fyrsta ári séu lágar og aðeins hluti þeirra lifi af fyrsta veturinn og geti tekið þátt í tímgun næsta vor.
„Stofnlíkanið byggir á veiðigögnum, krufningum og aldursgreiningum innsendra refahræja frá tímabilinu 2011–2024.“
Náttúrufræðistofnun segir að niðurstöður talningarinnar verði kynntar nánar á málþingi um íslenska refinn sem fram fari 9. júní næstkomandi.