Seðlabankinn hækkar vexti um tuttugu og fimm punkta

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákveður reglulega hvaða stýrivextir eru lagðir á íslensku krónuna.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákveður reglulega hvaða stýrivextir eru lagðir á íslensku krónuna. Mynd/samsett

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig.

„Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Fram kemur að allir nefndarmenn hafi stutt ákvörðunina.

Tólf mánaða verðbólga stendur í 5,2 prósentum samkvæmt síðustu mælingu, en verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5 prósent.

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir jafnframt:

„Í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans. Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.“

Vefútsending þar sem farið verður yfir ákvörðunina hefst klukkan 9:30.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og efni Peningamála.

Fylgjast má með útsendingunni og í kjölfarið nálgast upptöku af fundinum hér fyrir neðan.