Ísland tilnefnir Hefring Marine til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna

Markmið Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna er sagt vera að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafi framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn.

Karl Birgir Björnsson, forstjóri og einn stofnenda Hefring Marine.
Karl Birgir Björnsson, forstjóri og einn stofnenda Hefring Marine. Mynd/Hugverkastofan

Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine, handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2025, hefur fyrir Íslands hönd verið tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna 2026.

Í tilkynningu Hugverkastofu segir að að verðlaununum standi hugverkastofur Norðurlandanna.

Verðlaunin verða afhent í annað sinn við í Ósló 21. maí næstkomandi og beint streymi frá afhendingunni á vef Hugverkastofunnar.

Fram kemur að Hefring Marine hafi þróað snjallsiglingakerfið IMAS® (Intelligent Marine Assistance System) sem nýti gervigreind og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að birta skipsstjórnendum og flotastjórum leiðsögn í rauntíma um þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur.

„Kerfið er notað af björgunaraðilum, sjóherjum, útgerðum, bátaframleiðendum og ferðaþjónustuaðilum um allan heim, þar á meðal í Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ítalíu og á Íslandi.“

Þá segir að hvert Norðurlandanna tilnefni eitt nýsköpunarfyrirtæki til verðlaunanna.

„Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, velur eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin.“

Önnur fyrirtæki sem tilnefnd eru til verðlaunanna eru:

Lybe Scientific frá Noregi

„Lybe Scientific hefur þróað nýstárlega aðferð til að einangra DNA og RNA úr lífsýnum á fljótlegan hátt. Tæknin byggir á segulmögnuðum örkúlum og er notuð í læknisfræðilegri greiningu, lyfjaþróun, fiskeldi og margskonar lífvísindum.“

Sonus Fishery frá Danmörku

„Sonus Fishery hefur þróað aðferð til að nýta hljóðbylgjur til að beina ákveðnum fiskitegundum inn í botntroll og þannig opnað nýjar leiðir til skilvirkra veiða með minni áhrifum á hafsbotninn og lífríki sjávar.“

Weeefiner frá Finnlandi

„Weeefiner sérhæfir sig í endurvinnslu málma úr iðnaðaraffalli. Scavenger®-tæknin sameinar skilvirkni í nýtingu auðlinda og umhverfisvernd. Hún hefur verið prófuð víða um heim við endurvinnslu á meira en 15 mismunandi málmum og hentar mörgum geirum, þar á meðal námuiðnaði, málmiðnaði, efnaiðnaði og orkugeiranum.“

Grale frá Svíþjóð

„Grale hefur þróað valkost við umbúðaplast úr endurnýjanlegu hráefni, svo sem úrgangi frá landbúnaði og skógrækt. Tæknin er einkaleyfisvernduð og ekki þarf að breyta tækjabúnaði til að nýta hana, sem gerir lausnina skalanlega og hagkvæma.“

Þá segir Hugverkastofan að horft sé til fimm þátta við mat á tilnefndum fyrirtækjum:

  • Nýsköpun – Nýsköpunin verður að fela í sér nýja og frumlega nálgun, vísindi eða tækni, einstakar aðferðir eða skapandi lausnir við úrlausn vandamála.
  • Sjálfbærni – Nýsköpunin þarf að stuðla að aukinni sjálfbærni og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SDG).
  • Viðskiptalegur lífvænleiki og vaxtarmöguleikar – Nýsköpunin þarf að skapa grundvöll fyrir raunhæfa og skalanlega viðskiptahugmynd sem líklegt er að skili arði til framtíðar.
  • Mælanlegur árangur – Sýna þarf fram á að nýsköpunin hafi skilað mælanlegum árangri, hvort sem það er í formi sölutekna, markaðssóknar, viðskiptaáætlana eða nýrrar og viðurkenndrar aðferðafræði.
  • Skráð hugverk – Nýsköpunin þarf að vera vernduð með skráðum hugverkaréttindum (einkaleyfi, vörumerki eða hönnun) á viðeigandi mörkuðum.

Markmið verðlaunanna er sagt að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafi framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn.

„Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.“