Tala landsmanna er skriðin yfir 395 þúsund

Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu á fyrsta ársfjórðungi 2026.

Mannfjöldi, fólk, Laugardalur, Reykjavík, tónleikar.
Mynd/ÓKÁ

Landsmönnum fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi 2026 samkvæmt nýrri samantekt Hagstofu Íslands.

Fram kemur að í lok fyrsta ársfjórðungs hafi 395.050 manns búið á Íslandi, 202.560 karlar, 192.260 konur og 230 kynsegin/annað.

„Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 252.580 manns en 142.470 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 70.650 eða 17,9% af heildarmannfjöldanum.“

Fram kemur að á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi fæðst 1.110 börn og 640 manns látist.

„Á sama tíma fluttust 240 einstaklingar til landsins umfram brottflutta.“

Hagstofan segir að brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang hafi verið 210 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar verið 450 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

„Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.“

Mynd/Hagstofa Íslands