Apríl var hlýr með hitastigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 á landinu öllu, að því er fram kemur í nýrri samantekt Veðurstofu Íslands.
Hlýjast var á Norðausturlandi en kaldara á suðvesturhorninu.
„Vetrarveður var þó ríkjandi um páskana í upphafi mánaðar. Þá var kalt og töluverð snjóþyngsli á landinu. Hvassviðri olli miklum samgöngutruflunum um land allt á öðrum degi páska,“ segir Veðurstofan.
Þá er rifjað upp að í mánuðinum hafi líka gengið mikið eldingaveður yfir sunnanvert landið sem slegið hafi út rafmagni á stóru svæði.
„Fyrri hluti mánaðarins var sérlega úrkomusamur, en seinni hlutinn þurrari.“
Þá kemur fram að óvenju sólríkt hafi verið á Akureyri og þar hafi sólskinsstundir aldrei mælst fleiri í aprílmánuði.

Fyrstu fjórir mánuðir ársins
Veðurstofan tekur einnig saman tölur um fyrstu fjóra mánuði ársins.
Á tímabilinu mældist meðalhiti í Reykjavík 1,1 stig sem sagt er vera 0,4 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020.
„Í Reykjavík raðast meðalhitinn það sem af er ári í 54. til 55. hlýjasta sæti á lista 156 ára.“
Á Akureyri hafi svo meðalhitinn verið 0,2 stig sem sé 0,1 stigi undir meðallagi 1991 til 2020.
„Þar raðast meðalhiti janúar til apríl í 39. hlýjasta sæti á lista 146 ára.“
Fram kemur að janúar og febrúar hafi verið þurrir en mars og apríl aftur á móti úrkomusamir bæði í Reykjavík og á Akureyri.
„Heildarúrkoma fyrstu fjögurra mánaða ársins mældist 285,7 mm í Reykjavík, sem er um 90% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðanna fjögurra 182,7 mm sem er nærri meðallagi áranna 1991 til 2020.“
Alla umfjöllunina með tölum um hita, úrkomu, snjó, sólskinsstundir, vind og loftþrýsting má finna á vef Veðurstofunnar.