Verkefnið Sjóferð um sundin hefur nú staðið yfir í þrjá áratugi og gefið þúsundum grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins.
Í tilkynningu Faxaflóahafna segir að í ár hafi verkefnið hafist í byrjun mánaðar og hundruðir grunnskólabarna nú þegar farið í siglingu um Faxaflóa með leiðsögn og fræðslu.
Síðasta siglingin ársins er miðvikudaginn 6. maí, en Sjóferð um sundin er samstarfsverkefni Faxaflóahafna, Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Special Tours.

Sjóferð um sundin í 30 ár
Fram kemur að Faxaflóhafnir, Fjölskyldu -og húsdýragarðurinn og ferðaþjónustufyrirtækið Special Tours (þá Sérferðir) hafi allt frá árinu 1996 unnið saman að því að bjóða 6. bekkingum í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi upp á forsiglingu um Faxaflóann með leiðsögn og fræðslu.
„Sjóferð um sundin er árlegt verkefni sem notið hefur mikilla vinsælda og er oftast fullbókað í þær ferðir sem farnar eru.“
Í tilkynningunni segir að hjá Faxaflóahöfnum sé fólk ákaflega stolt af verkefninu og því að gefa börnum kost á tengingu við höfnina, hafið og lífríkið sem í því býr.
„Yfir þrjátíu þúsund grunnsólabörn hafi farið í Sjóferð um sundin siglingu síðustu 30 ár þar sem um og yfir þúsund börn fara að jafnaði í siglinguna ár hvert.“
