Notkun efnaskiptalyfja, sem meðal annars eru notuð við sykursýki og til þyngdarstjórnunar, hefur margfaldast síðustu ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Gylfa Ólafssonar heilsuhagfræðings á afmælisráðstefnu Frumtaka í síðustu viku.
Á síðasta ári voru hér á landi keypt efnaskiptalyf fyrir 5,3 milljarða króna, en í þessum flokki lyfja eru lyfin Victoza, Rybelsus, Saxenda, Ozempic og Wegovy.
Notendur úr þúsund í sjö þúsund

Í samantekt Gylfa kom fram að þar af hafi hafi fólk greitt 70 prósent upphæðarinnar úr eigin vasa, 3,7 milljarða króna. Restina báru Sjúkratryggingar Íslands, 1,6 milljarða króna.
Gylfi fór yfir hvernig kostnaður vegna greiðsluþátttöku í þessum flokki lyfja hafi aukist hröðum skrefum með aukinni notkun þeirra og tilkomu Ozempic og Saxenda í kring um 2019.
Í ársbyrjun 2020 voru um þúsund manns sem notuðu þessi lyf, en sá fjöldi var árið 2023 kominn upp í um sjö þúsund.
Aukning þrátt fyrir hert skilyrði
Í ljósi aukins kostnaðar við þennan flokk lyfja gerði Lyfjastofnun breytingar á reglum um úthlutun þeirra undir lok árs 2023 og herti skilyrði um greiðsluþátttöku.
Sú ákvörðun var ekki óumdeild og taldi sérfræðingur í meðferð við offitu meðal annars ástæðu til að óttast að til yrði tvöfalt heilbrigðiskerfi.
Notkun lyfjanna hefur engu að síður haldið áfram að aukast, þó að notendur greiði í auknum mæli fyrir þau úr eigin vasa.
Ráðstefna Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda, fór fram á Hilton Reykjavík Nordica 21. apríl síðastliðinn, en hún var haldin í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna undir yfirskriftinni: Hvað ræður í lyfjamálum, vísindin, peningarnir, eða pólitíkin?
Tíðindi í ávarpi ráðherra
Húsfyllir var á ráðstefnunni, en þar greindi Alma Möller heilbrigðisráðherra í ávarpi frá ákvörðun um breyttar áherslur við verðlagningu lyfja hér á landi sem eiga að geta ýtt undir skráningu nýjustu lyfja hér á landi. Ísland hefur verið eftirbátur nágrannaþjóðanna í þeim efnum.
Að loknu ávarpi ráðherra fluttu erindi, auk Gylfa, Ragnhildur Reynisdóttir, stjórnarformaður Frumtaka, Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands. Þá fóru fram umræður í pallborði.