Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur að Ísland hafi ekki innleitt EES reglur um útsenda starfsmenn með réttum hætti. Stofnunin hefur því sent íslenskum stjórnvöldum formlegt áminningarbréf varðandi tilskipun um útsenda starfsmenn og gefið út rökstutt álit vegna framkvæmdatilskipunar um útsenda starfsmenn.
Í tilkynningu ESA er tekið fram að útsendir starfsmenn séu launþegar sem sendir séu tímabundið af vinnuveitanda sínum til starfa í öðru EES-ríki á meðan ráðningarsamband þeirra við heimaríkið helst óbreytt. Þeir eigi þó rétt á tilteknum kjörum í gistiríkinu, svo sem hvað varði laun, vinnutíma og orlof.
„Tilskipunin um útsenda starfsmenn, sem var fyrst samþykkt árið 1996 og endurskoðuð árið 2018, kveður á um þessi réttindi og hefur það markmið að stuðla að frjálsri þjónustustarfsemi yfir landamæri innan EES, jafnframt því að tryggja sanngjarna samkeppni og koma í veg fyrir félagsleg undirboð.“
Framkvæmdatilskipunin styðji svo við þessar reglur með því að tryggja að þeim sé beitt og framfylgt í raun.
„ESA hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki gert nauðsynlegar ráðstafanir til að innleiða endurskoðun tilskipunarinnar frá 2018 og hefur því sent formlegt áminningarbréf.“
Eitt dæmi um ágalla í innleiðingu hér er sagt varða svokallaða keðjuútsendingu sem á sér stað þegar starfsmannaleiga leigir starfsmann til fyrirtækis sem síðan sendir starfsmanninn áfram til annars EES-ríkis.
„Endurskoðaðar EES-reglur skýra hver ber ábyrgð á því að tryggja réttindi starfsmannsins í slíkum tilvikum. Íslensk löggjöf tekur hins vegar ekki með skýrum hætti á þessari stöðu.“
Að auki skýri endurskoðaðar EES-reglur rétt útsendra starfsmanna til endurgjalds vegna ferða-, gisti- og fæðiskostnaðar, bæði við upphaf ferðar til gistiríkis og vegna ferða innan gistiríkisins á meðan verkefni stendur yfir.
„ESA hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki að fullu innleitt þessar reglur,“ segir á vef stofnunarinnar.
Þá hafi ESA jafnframt bent á skort á reglum um tilvik þar sem starfsmaður sé ranglega flokkaður sem útsendur.
„Í slíkum tilvikum skulu starfsmenn engu að síður njóta fullrar verndar samkvæmt lögum gistiríkisins.“
ESA segist samhliða hafa metið innleiðingu Íslands á framkvæmdatilskipuninni um útsenda starfsmenn. Þeir annmarkar sem greindir hafi verið í formlegu áminningarbréfi árið 2023 séu að mestu enn til staðar.
Af þeim sökum hafi ESA nú sent rökstutt álit.
„ESA telur að Ísland hafi ekki tryggt fullt umfang gagnkvæmrar stjórnsýsluaðstoðar yfir landamæri milli innlendra stjórnvalda eins og krafist er samkvæmt framkvæmdatilskipuninni.“
Þetta feli meðal annars í sér skyldu stjórnvalda til að framkvæma athuganir, eftirlit og að eiga skilvirkt samstarf við önnur EES-ríki.
„ESA telur jafnframt að ekki hafi verið tryggt að útsendir starfsmenn geti lagt fram kvartanir beint gegn vinnuveitendum sínum eða hafið stjórnsýslumál. Þá hafa ákvæði um framkvæmd stjórnvaldssekta og -viðurlaga yfir landamæri ekki verið innleidd með fullnægjandi hætti.“
Formlegt áminningarbréf er sagt fyrsta skref í samningsbrotamáli, en rökstutt álit annað skrefið. Ísland hafi nú tvo mánuði til að bregðast við athugasemdum ESA áður en stofnunin ákveði hvort málin verði tekin áfram.