Rúmar 64 milljónir króna í 20 skólaþróunarverkefni

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.

Í Safnahúsinu. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt styrkþegum og Braga Þór Svavarssyni stjórnarformanni Sprotasjóðs.
Í Safnahúsinu. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt styrkþegum og Braga Þór Svavarssyni stjórnarformanni Sprotasjóðs. Mynd/Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað tæpum 64,4 milljónum króna til tuttugu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027.

Afhending styrkja fór fram í Safnahúsinu sl. laugardag, en þá afhentu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins.

„Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga,“ segir í frétt mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Þá kemur fram að umsýsla sjóðsins sé hjá Rannís og á árið 2026 hafi verið lögð áhersla á eftirfarandi þætti:

  • Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi
  • Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði

„Sjóðnum bárust 39 gildar umsóknir að undangenginni auglýsingu og sótt var um rúmlega 146 m.kr.“

Á gagnatorgi Rannís er svo hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs.

Fram kemur í færslu ráðuneytisins að þar megi einni nálgast upplýsingar um styrkt verkefni Sprotasjóðs frá árinu 2022 og finna stutta lýsingu úr lokaskýrslu, sem birtist eftir að verkefni er lokið.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2026:

StyrkþegiHeiti verkefnisÚthlutaður styrkur
KópavogsbærGervigreind – Uppspretta nýrra tækifæra?6.550.000 kr.
Menntaskólinn á ÍsafirðiHönnunarhugsun í þróun kennsluhátta og námsmats6.250.000 kr.
Mosfellsbær, allir leikskólarSamskiptasáttmáli Mosfellsbæjar5.000.000 kr.
Listasafn ÍslandsÞar sem sögur mætast4.460.000 kr.
HagaskóliÍslenska í daglegu lífi ungmenna4.200.000 kr.
Kópavogsbær, menntasviðLausnahringurinn í leikskólum Kópavogs4.000.000 kr.
FoldaskóliSkólastofa samtímans4.000.000 kr.
Sveitarfélagið Árborg, leikskólinn JötunheimarMál skiptir máli3.500.000 kr.
Neyðarlínan ohf.Stærri og sterkari Sexa3.410.000 kr.
Lundasel – PálmholtAð undrast – Samræður í leikskólastarfi3.360.000 kr.
BorgarhólsskóliLítil skref á leið til læsis3.200.000 kr.
Reykjavíkurborg, leikskólinn RauðhóllSkógarhópurinn – Rannsókn í þágu lýðheilsu barna3.000.000 kr.
Borgarbyggð, leikskólinn KlettaborgSTEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar2.660.000 kr.
Akureyrarbær, GlerárskóliFjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir2.500.000 kr.
VogaskóliRaddir ungmenna, lýðræði, tölfræði og textalæsi2.000.000 kr.
Akureyrarbær, IðavöllurFjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms2.000.000 kr.
SelásskóliLeikur á viku hreyfing, samvinna og lýðræði í leik1.730.000 kr.
Alice DemurtasKveikt – QFT í Kennslustofunni1.200.000 kr.
VogaskóliUndirbúningur milli skólastiga800.000 kr.
Reykjavíkurborg, HvassaleitisskóliLæsi fyrir lífið550.000 kr.