Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent Íslandi formlegt áminningarbréf vegna rangrar innleiðingar á ákvæði tilskipunar um mat á umhverfisáhrifum.
Stofnunin telur hættu á að opinberir aðilar kunni, í stöku tilvikum, að bera tvo hatta á höfði með því að gegna bæði hlutverki framkvæmdaraðila og stjórnvalds sem beri ábyrgð á að veita leyfi fyrir viðkomandi framkvæmd.
Tilkynning ESA um áminninguna kom í kjölfarið á tilkynningu um að formlega væri hafin málsmeðferð gegn Íslandi fyrir að fylgja ekki EES reglum um flutning milli EES ríkja á dýraafurðum sem eigi uppruna í þriðju ríkjum.
„Tilskipun 2011/92/ESB um mat á umhverfisáhrifum setur fram yfirgripsmikið ferli sem á að tryggja að framkvæmdir sem kunna að hafa veruleg áhrif á umhverfið séu greindar og að umhverfisáhrif þeirra séu metin áður en leyfi er veitt fyrir þeim. Þá gerir hún jafnframt kröfu um að komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra,“ segir á vef ESA.
ESA segir að í kjölfar kvörtunar sem stofnuninni hafi borist hafi hún komist að þeirri niðurstöðu að í tilteknum tilvikum geti opinberir aðilar á Íslandi gegnt bæði hlutverki framkvæmdaraðila og þess stjórnvalds sem ber ábyrgð á að veita leyfi fyrir framkvæmdum.
„Á grundvelli mats síns, þar á meðal í ljósi samskipta við íslensk stjórnvöld, telur ESA að 2. mgr. 9. gr. tilskipunarinnar, sem krefst þess að ríki komi sér upp skýrum reglum til að koma í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra, hafi ekki verið innleidd með réttum hætti í landslög.“
Bent er á að formlegt áminningarbréf sé fyrsta skrefið í brotamáli gegn EFTA-ríki á EES-svæðinu. Ísland hafi nú tvo mánuði til að bregðast við athugasemdum ESA áður en tekin verði ákvörðun um næstu skref.
Ákvörðun ESA má lesa hér.